Heimili og skóli - 01.04.1955, Page 20
40
HEIMILI OG SKÓLI
að tala við sálfræðinginn, segir í skýrsl-
unni.
Komið er með kjiirbarn vegna
ákafra geðofsakasta, vandræða með
mat, hræðslu á nóttum o. fl.
Stúlka ein úr sveitinni kemur af því,
að hún er þjófgefin, stelur bæði frá
ókunnugum og foreldrunum, er
óhlýðin og gleymir öllu.
Þetta eru nokkur dæmi um erfið
börn, sem hafa þurft mikla hjálp til að
ná sér. Orsök erfiðleikanna er oft rang-
ir heimilishættir, sem stöfuðu oft af
gölluðum hjónaböndum.
Reynt var að hjálpa þessum börnum
á þann hátt að fá foreldrana til að
breyta heimilisháttum og svo er fylgst
með líðan barnanna.
R ófn a barnastofu rnar.
A eyjunum Lálandi og Falstri er
ræktað mikið af sykurrófum. Á þenn-
an liátt fá Danir ekki aðeins nógan
sykur handa sjálfum sér, heldur einnig
flytja þeir út sykur fyrir 150 millj.
kr. á ári.
I sept., okt. og nóv. er uppskera á
sykurrófum á eyjunum. Við það
vinna allir af heimilunum, sem geta.
Foreldrar verða að taka yngri börn
með út í rófuakurinn, þó að oft sé
þar bæði kuldi og bleyta. Við þetta
er heilsu barnanna stéfnt í hættu og
oft fá þau kvef og aðra kvilla af vos-
búð og kulda. Árið 1950 hófst „Red
barnet“ handa um að hjálpa þessum
börnum. Það kom upp svo kölluðum
rófubarnastofum, þar sem börnin
gátu dvalið að deginum undir eftirliti
meðan foreldrar þeirra unnu á ökr-
unum. í byrjun var erfitt að fá hús-
næði. Sumar þessar barnastofur voru í
samkomuhúsum, en aðrar á heimilum.
Félagið sá um stúlkur til að gæta barn-
anna, og er þessi starfsemi öll undir
stjórn hjúkrunarkonu. Árin 1951 og
1952 hafa 700—1000 börn notið þess-
arar aðhlynningar félagsins og hefur
þessi starfsemi mælzt mjög vel fyrir
og verður eflaust haldið áfrarn. Síðara
árið hafði félagið 80 starfsstúlkur og
kostaði þessi starfsemi 80.000 krónur.
Samkeppni i H. C. Andersen barna-
teikningum.
Þá vil ég að lokum nefna eitt
skemmtilegt viðfangsefni þessa félags,
þó að það sé dálítið annars eðlis en
hin, sem ég hefi skýrt frá. Félagið
gekkst fyrir samkeppni í barnateikn-
ingum út af ævintýrum H. C. Ander-
sens. Þessi keppni var alþjóðleg. Um
220 skólar í Danmörk tóku þátt í
þessari keppni og bárust um 5000
teikningar. Voru svo valdar 600 þær
beztu og haldin sýning á þeim víðs
vegar í Danmörk. Hefur félagið eflaust
fengið nokkrar tekjur af þessum sýn-
ingum. Úr þessum 600 teikningum
voru svo valdar 100 og voru veitt
verðlaun fyrir þær. Um 80 af börnun-
unt komu til að taka við verðlaunun-
um á sýningunni. Einn af leikurum
Danmerkur kom þar í gerfi H. C.
Andersens og afhenti verðlaunin. En
þessar 100 teikningar voru framlag
Danmerkur til alþjóðlegrar sýningar
á þessum teikningum. F.n alls tóku 40
lönd þátt í þessari samkeppni. Þess
má að lokum geta að sýning var á
þessum barnateikningum og einnig
frá fleiri löndum í Listamannaskálan-
um í Reykjavík s.l. sumar. Var hún
mjög skemmtileg. — E. Sigurðsson.