Heimili og skóli - 01.04.1955, Page 25
HEIMILI OG SKÓLI
45
hinum innri þörfum nemandans, lær-
ist miklu betur og fljótar en það efni,
sem fjarnið hefur engan áhuga á. I
þessu sambandi getur einnig verið um
það að ræða, að kennarinn geti haft
veruleg áhrif á barnið, þannig, að hon-
um takist að vekja lijá því áhuga, sem
ekki var áður fyrir hendi. Það skiptir
einnig nriklu rnáli fyrir allt nám, að
það takist að sýna barninu fram á að
námið sé nauðsynlegt, lrafi visst mark-
mið, sem barnið skilur.
(Unge Pæclagoger.) II. J. M. pýddi.
Meiri krit.
Drengur nokkur, sem hafði þann ljóta sið
að tala ljótt, var einu sinni sem oftar ávarp-
aður harðlega af föður sínum.
„Veiztu, hvað kemur fyrir þig, þegar þú
deyrð, ef þú heldur þessum ósið áfram?“
sagði faðir hans.
„Nei,“ svaraði drengurinn.
„Þegar þú ert dáinn,“ hélt faðir hans
áfram, munt þú þurfa að klifra upp mjóan
og háan stiga, og fyrir hvert ljótt orð, sem
þú sagðir meðan þú lifðir, þarftu að setja
krítarkross á stigann.“
„Jæja,“ sagði strákur. „Ég skal muna
það.“
Nsesta morgun kom hann til föður síns og
sagði:
„Veiztu það, pabbi, að mig dreymdi mjög
skemmtilegan draum í nótt. Mér fannst ég
vera dáinn, og ég var að klifra upp stigann,
sem þú sagðir mér frá. En þegar ég var
kominn hálfa leið upp, mætti ég þér.“
„Hvers vegna var ég að fara niður?“
spurði faðir hans.
„Þú sagðist þurfa að ná í meiri krít,“
sagði strákur.
Þýtt úr ensku. S. H.
Davíð Stefánsson
sextugur:
Sem töjraprins komstu’ úr vorsins
veldi,
með vorsins Ijóða’ og strengja-klið,
sem fór urn hugina unaðseldi
frá innstu hyggðum á fjarstu mið.
Sem mildi blæsins — sem brimsins
orka
var breytileikinn í þinum óð, —
sem Heklu eldur — sem isastorka —
sem ómur linda — sem jökulflóð. —
Þú kveiktir eld.a af gömlum glæðum
og gafst þeim nýrra töframátt. —
I þinum söngvum, — i þinum kvæðum
fann þjóðin öll sinn hjartaslátt.
Og þjóðin hlustar á hörpu þina
unz hinzta blik um tincla skin. —
Þvi eldar lifna og elclar dvina, —
en aldrei deyja Ijóðin þin. —
M.
NÝR NÁMSSrjÓRI.
Undanfarnin ár hefur enginn námsstjóri
verið í Austfirðingafjórðungi. og hafa aust-
firzkir kennarar unað því illa, sem vonlegt
er, að vera þannig settir hjá. Nú hefur
menntamálaráðherra skipað Jóhannes O.
Sæmundsson, áður skólastjóra í Arskógi við
Eyjafjörð, námsstjóra á Austurlandi. Er
hann líklegur til að vinna þar gott verk, því
að hann er hinn mesti áhugamaður um upp-
eldis- og skólamál.