Heimili og skóli - 01.04.1955, Blaðsíða 26

Heimili og skóli - 01.04.1955, Blaðsíða 26
HEIMILI OG SKÓLI 46 Hjálpartæki við byrjunarkennslu í lestri. Fyrir nokkrum árum lét Barnaskóli Akureyrar gera nýtt tæki til notkunar við byrjunarkennslu í lestri. Var það gjört eftir fyrirsögn Jóns Þorsteins- sonar, kennara, sem kennt hefur bvrj- endum lestur um áratuga skeið. Tækið er, svo sent rnyndir sýnir, 150 um. há grind með tveimur færanleg- urn ásum. Á neðri ásnum er komið fyr- ir 40 cm. breiðri pappírsrúllu, ert efri ásinn vindur svo pappírinn upp á sig, eftir því sem með þarf til að færa les- málið til. Á milli ásanna, bak við pappírinn, er slétt plata, sem má vera annað hvort úr þykkum krossviði, sem ekki verpist, valborði, eða ,,masonit“. Þessu tæki þarf svo að fylgja letur, bæði stóru stafirnir og litlu stafimir, svo og tölustafir, reikningsmerki og greinarmerki. Hæfileg hæð á stóru stöfunum er 6 cm., en litlu stafirnir og tölustafirnir mega vera litlu minni. Stafir þessir eru límdir á tréklossa 3,5 cm. þykkan. Nauðsynlegt er svo að hafa þessa stafi í hæfilega stórum köss- um, þannig, að þykkt stafanna og dýpt kassans sé hin sama. Gott er að hafa litla stafrófið sér í kassa, en það stóra,

x

Heimili og skóli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.