Heimili og skóli - 01.04.1955, Qupperneq 27

Heimili og skóli - 01.04.1955, Qupperneq 27
HEIMILI OG SKÓLI 47 svo og tölustafi o. fl. í öðrum. Að auki þai'f svo stimpilpúða og stimpilblek. Þetta tæki hefur marga kosti og hef- ur reynzt okkur vel. Kennarinn getur undirbúið lestrarefnið fyrirfram og alltaf komið með eitthvað nýtt á hverj- um degi. Það geymist svo þarna og má endurtaka það eftir vild, og bæta alltaf nýju og nýju við. Ef eitthvað skortir á þessar upplýs- ingar, er auðvelt að fá frekari leiðbein- ingar hjá okkur. Kristján S. Sigurðsson, trésmíða- meistari á Akureyri, hefur gert tvö sfík tæki fyrir okkur, og einnig mun hann hafa gert eitt fvrir Barnaskóla Húsa- víkur. H. ./. M. Bækur og rit. Ávarp F jallkonunnar. Útgefandi Ríkis- stjóm Islands. Þetta er ljóð það, sem Davíð Stefánsson skáld orti fyrir 10 ára afmæli lýðveldisins, og skáldið flutti 17. júní á Akureyri. Einnig las „Fjallkonan" það upp af svölum Alþing- ishússins í Reykjavík. Þetta er falleg útgáfa, skreytt með mynd- um eftir Asgeir Júlíusson teiknara. — Um kvæðið þarf ekki að fjölyrða. Á því er hinn sami snilldarbragur og öðru því, er Davíð lætur frá sér fara. Mermtamál, 1. hefti 28. árgangs. í hefti þessu eru margar athyglisverðar greinar, sem eiga erindi til almennings, er lætur sig uppeldis- og skólamál einhverju varða. — Heftið hefst á grein um Davíð skáld Stef- ánsson sextugan eftir ritstjórann, dr. Brodda Jóhannesson. Þá er grein um vangefin börn eftir Jónas B. Jónsson fræðslufulltrúa. Staðtölufræði í þágu skóla eftir Jónas Páls- son uppeldisfræðing. Hófleg íhaldssemi og nýjungagirni eftir ritstjórann og margar fleiri athyglisverðar greinar. Vorið, 1. hefti 21. érgangs. Ritið hefst á grein, sem nefnist Vorið 20 ára. Er þar skýrt frá stofnun Vorsins, en 1. hefti þess kom út í janúar 1932. Stofnandi þess var Hannes J. Magnússon, og hefur hann verið ritstjóri þess og útgefandi alla tíð síðan, að undanteknum 3 árum, frá 1935-—1939, en þau ár kom Vorið ekki út. Árið 1939 gerðist Eiríkur Sigurðsson meðritstjóri þess, og hef- ur verið svo síðan. Vorið kemur út fjórum sinnum á ári, hvert hefti 40 siður. Þetta hefti flytur að vanda margar sögur, leikrit, þrautir alls konar, ritsmíðar eftir börn o. m. fl. SJ () ÞJ ÓÐ F ÉLAGSSY NDIR (Eftir Donaldsson Itanúka.) 1. Stjórnmál án stefnu. 2. Auðlegð án vinnu. 3. Skemmtun án samvizku. 4. Þekking án drenglyndis. 5. Verzlun án ráðvendni. 6. Vísindi án mannúðar. 7. Guðsdýrkun án fórnar. ----o---- Trú er það ekki, að vera sannfærður án sannana, heldur hitt, að þora að aðhafast, án ótta við afleiðingarnar. í TVÆR REGLUR. Tvær eru þær reglur, sem ættu að vera ritaðar í hjarta hvers manns: Trúðu aldrei neinu illu um nokkurn mann, án þess að hafa óyggjandi sannanir fyrir því, að það sé rétt. Og þótt þær fáist, þá segðu samt ekki öðrum frá því, nema þú finnir að brýnasta nauðsyn krefji og guð hlýði á meðan þú seg- ir frá. (Henry Van Dyke.)

x

Heimili og skóli

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.