Heimili og skóli - 01.02.1956, Qupperneq 10

Heimili og skóli - 01.02.1956, Qupperneq 10
4 HEIMILI OG SKÓLI ekki tvenn eða fleiri.' Það sem faðirinn segir, það segir móðirin einnig. Það sem gildir í dag, það gildir einnig á morgun, þegar um grundvallaratriði er að ræða, þá lærir barnið að virða lögin og hlýða þeim, en uppeldi án löghlýðni og aga verður aldrei gott. Heimurinn er ofhlaðinn af fyrirætl- unum og áhyggjum. Og mörgum sýn- ist sem svo, að þessar fyrirætlanir séu svo stórar og merkilegar, og það eru þær oft, að enginn tími sé til að sinna smámunum eins og barnauppeldi. En guði sé lof, að mæðurnar hafa ekki enn tekið þátt í öllum þessum „stóru á- formum," annars færi illa. Já, það er ekki von, að menn hafi tíma til að sinna þeim, sem minnstir eru allra, og eru að margra dórni svo dæmalaust þýðingarlitlir fyrir daginn í dag. Og kannski er þarna einhver mesti veik- leiki okkar aldar, að hugsa of mikið um daginn í dag. Við gleymum því stundum á hraðsiglingu okkar um tímans haf, að við höfum framtíðina og hamingju hennar innanborðs, þar sem börnin okkar eru. Gott uppeldi barnanna okkar, getur afplánað allar okkar fyrri misgerðir, en vanrækjum við það, er það synd, sem aldrei verður fyrirgefin. Sú skuld, sem við komumst þá í við framtíðina, verður aldrei greidd. Nýtt ár er gengið í garð. Enn er það eins og óskrifað blað, lokuð bók. En gleymum því ekki, þrátt fyrir öll okkar „stóru áform“, að mikilvægasta verk- elni hvers nýs árs er uppeldi bamanna okkar, og þar með framtíðarhamingja þeirra. Hannes ]. Magnússon. Bækur og rit. Nokkru fyrir jólin kom út lítil bók, sem bæði er falleg að efni og frágangi. Nefndist hún Snga myndhögguarans, og er eftir Eirík Sigurðsson, yfirkennara á Akureyri. Þetta er fimmta bók höfundar, og líklega sú bezta. Bókin segir frá fátækum sveitadreng, sem gengur með óslökkvandi menntaþrá í brjósti, og þá fyrst og fremst þrá til listmenntunar. Lærdómsrík fyrir nútímabörn er bernsku og æskusaga Dags litla. Hún er saga erfiðleika, íátæktar og umkomuleysis, en einnig saga ástríkis og unaðar hjá góðum foreldrum, en þó einkum góðri móður, því að Dagur missti föður sinn mjög snemma. En smátt og smátt tekur að hilla undir ævintýrið mikla. Hinn mikli draumur á að rætast. Bókin er prýdd nokkrum myndum eftir frú Elísabetu Geirmundsdóttur. Um ájengi og tóbak. Handbók kennara. Útgefandi fræðslumálastjórnin. Þetta er, eins og nafnið bendir til, hjálparbók fyrir kennara við fræðslu um áfengi og tóbak og áhrif þess á ýmsum sviðum. — Brynleifur Tobiasson, áfengisvarnaráðunautur, hefur annazt rit- stjórn bókarinnar, en annars er hún skrifuð af ýmsum sérfræðingum í þessum efnum. Tveir fyrstu kaflarnir eru eftir prófessor dr. 0rnulv 0degárd, en Benedikt Tómasson skólastjóri hefur þýtt greinainar. Heitir sú fyrri Áfengi og áhrij þess, en hin Ájengi og geðheilsa. Aðrir kaflar eru: Afengi og fjármál eftir Guðlaug Þorvaldsson hagfræðing. Saga bindindishreyfingarinnar eftir Brynleif Tobí- asson. Áfengi og Kristin trú, eftir Helga Tryggvason kennara, Afengisvarnarstöð Reykjavíkur, eftir Kristján Þorvarðarson latkni. Bindindisstarfsemi á Islandi eftir Bryn- leif Tobíasson, Tóbaksnautn eftir Níels Dungal prófessor, og nokkrir smærri kaflar. Bókin er 140 blaðsíður að stærð og flytur mikinn og hagnýtan fróðleik um öll þessi mál. Er mikill fengur fyrir kennara að fá þessa bók.

x

Heimili og skóli

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.