Heimili og skóli - 01.02.1956, Page 21

Heimili og skóli - 01.02.1956, Page 21
HEIMILI OG SKÓLI 15 Að lokum kemur hér svo mynd af reikningstæki, sem Jón hefur látið gera, og er hann nú að nota það við kennslu. Ég held, að tækið þurfi ekki skýringar við. Þó skal þess getið að alltaf má skipta um töluna í miðjunni, eftir því hvað verið er að æfa. H. J. M. Li&sbón. Heimili og skóli hefur nú komið út í 14 ár, og enn hefur það göngu sína til kaupencla. Það hóf göngu sína með tvær hendur tómar, og treysti á vinsemd og greiðvikni almenn- ings. Þær dyggðir hala heldur ekki brugðizt, því að á þeim hefur ritið lifað þessi liðnu ár. En ritið hefur enn of fáa kaupendur. Því verður nú hafin herferð í því skyni að afla því nýrra áskrifenda. Til þess að gera mönn- um hægara fyrir, sem vilja leggja ritinu lið, fylgir hefti þessu áskriftarseðill. Það þarf ekki annað en að útfylla hann og senda hann til baka. Við treystum á alla kaupendur að fá einn áskrifanda að minnsta kosti, og er þá vel unnið þetta ár. Þrátt fyrir hækkun á prentun, verður haldið hinu sarna áskriftar- verði, sem er 25,00 kr. Þá verður reynt að þessu sinni að senda ritið nokkrum mönnum, sem ekki hafa keypt það áður. Ef fyrsta og annað hefti verða ekki endursend, verður Iitið svo á, að menn þessir hafi gerzt áskrif- endur, og verður þeim sent ritið áfram. Þá skal enn einu sinni endurtekin sú beiðni, sem oft hefur verið flutt hér í ritinu, að kennarar og foreldrar sendi þvi efni til birtingar. Það er líka mikill greiði. Svo þakkar Heimili og skóli öllum sínum stuðningsmönnum og velunnurum fyrir við- skiptin á liðnu ári, einkum á ritið mörgum kennurum og skólastjórum þakkir að gjalda. An þeirra hefði það átt erfitt uppdráttar. En á þá treystir það líka alveg sérstaklega, bæði varðandi útbreiðslu og efni í blaðið. Engir eru líklegri en þeir til að geta orðið tengilið- ir á milli ritsins og foreldranna, en til þeirra vill jjað um fram allt ná og hafa samvinnu við. Ritstjórinn.

x

Heimili og skóli

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.