Heimili og skóli - 01.02.1956, Síða 22

Heimili og skóli - 01.02.1956, Síða 22
16 HEIMILI OG SKÓLl Persónuleiki kennarans skapar andrúmsloftiá í ftekknum. Grein þessi birtist nýlega í sænsku tímariti. Harriet Hjort, rithöfundur, talar við Sten Áke Björling, fil. mag., kennara í tungumálum við Sigtunaskól- ann, sem er menntaskóli og sérskóli fyrir pilta. Þýð. Enski uppeldisfræðingurinn A. L. Neill segir: Ef barn kallar kennara sinn Georg, er það öruggt og óttalaust. Ef kennar- inn lætur sér það lynda, að barnið kalli hann Georg, er hann ekki hrædd- ur um að virðingu sinni verði misbið- ið. Þá hefir myndast samband, þar sem persóna kennarans veldur engum hömlum hjá barninu, svo að það getur óhindrað lagt sig fram við námið. „Areiðanlega liggur í þessu mikill sannleikur,“ segir mag. Björling. „Þó að ég persónulega taki þetta ekki allt of bókstaflega." „Já, hvers vegna eru nemendur oft hræddir við kennara sinn? Og hvers vegna er kennarinn oft allt of strang- ur og fjarlægur nemendum sínum þegar hann stendur frammi fyrir bekknum?" Kennarinn grípur oft til óþarfa strangleika, til þess að svo virðist sem hann hafi fullkomið vald, ekki aðeins yfir nemendum sínum, heldur einnig vfir sjálfum sér. Hann óttast það að halda ekki virðuleik sínum óskertum gagnvart bekknum og er hræddur um að geta ekki haldið uppi nauðsynleg- um aga. Til þess að dylja þennan ótta sinn, t. d. frammi fyrir nýjum nem- endum, gerist hann oft óeðlilega strangur. Þetta öryggisleysi kennarans verkar ósjálfrátt á bekkinn þannig, að börnin verða hrædd og kvíðin, þau vita aldrei, hvers þau mega vænta af kennaranum, hann missir því tiltrú þeirra og einlæga hreinskilni, en í staðinn verða þau dul og þrjózk. Með því að skapa þennan ótta hjá börnunum, finnst kennaranum oft að hann hafi náð æskilegum tökum á bekknum, og nú hafi hann lagt grund- völl, hinn sjálfsagða aga. En um leið hefir myndast djúp gjá milli kennarans og bekkjarins, sem oft vill reynast erfitt að yfirstíga. Slík- um kennara er ákaflega sárt um virð- ingu sína, hann vill alltaf standa þrepi ofar en nemendurnir, hann telur ag- ann höfuðatriði og virðir að vettugi eðlileg sjónarmið nemenda sinna.“ „En eru ekki til kennarar, sem virð- ast hafa æskilegan aga án þess að þurfa nokkuð að hafa fyrir því?“ „Jú, rétt er það, en það er ekki auð- skýrt eða auðlært, því að slíkt áhrifa- vald virðist vera hluti af persónuleika kennarans. Sé kennarinn óþvingaður og frjálsmannlegur, stafar frá honum persónulegu öryggi, og þá þarf hann ekki að vera á verði aragnvart nemend- um sínum. Hann þarf ekki að gera sér

x

Heimili og skóli

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.