Heimili og skóli - 01.02.1956, Blaðsíða 27
HEIMILI OG SKÓLI
21
Barnaskólar. Auglýstar voru 29 skóla-
stjórastöður og 74 kennarastöður við fasta
skóla. Framlengdur var umsóknarfrestur um
margar þeirra. Ekki er búið að setja í allar
þessar stöður enn þá og enginn umsækjandi
kominn um 2 þeirra. Allmargir menn, sem
ekki hafa kennarapróf, hafa verið settir í
stöður við fasta skóla, þar sem ekki var völ
á neinum öðrum. Eru þeir menn fleiri en
undanfarin ár .
Við barnaskóla í kaupstöðum og stærstu
kauptúnunuin hafa þessir verið settir skóla-
stjórar: Þorgeir Ibsen í Hafnarfirði, Olafur
H. Arnason í Stykkishólmi, Jón Þ. Eggerts-
son á Patreksfirði, Pétur Surnarliðason, Búð-
um í Fáskrúðsfirði, Ingimar Sveinsson á
Djúpavogi.
Allmiklar breytingar hafa orðið á skóla-
stjórum við heimavistarbarnaskóla og er lítt
sótt um þær stöður. Nýr heimavistarskóli tók
til starfa í Svarfaðardal nú í haust. Skóla-
stjóri þar er Gunnar Markússon, er áður
stýrði Flúðaskóla. Þá hefur og Torfi Guð-
brandsson frá Heydalsá verið settur skóla-
stjóri heimavistarskólans í Arnesskólahverfi,
Heimir Þ. Gíslason á Kópaskeri og Björgvin
Magnússon að Jaðri við Reykjavík.
Enn eru flestar umsóknir um kennara-
stöður í Reykjavík og nágrenni. Bárust 100
umsóknir um stöður við barna- og gagnfræða-
stigsskóla í Reykjavík, þar af 56 við barna-
skólana. Er það miklu færra en sl. ár.
Auglýstar voru um 20 farkennarastöður.
Enn vantar nokkra kennara, einkum þar sem
kennslutími er mjög stuttur, 3—4 mánuðir.
Yfirleitt verður að setja menn, sem ekki
hafa kennararéttindi í farkennarastöður. Að-
eins 4 kennaraprófsmenn hafa verið settir í
farkennarastöðu á þessu hausti. — Nánara
yfirlit um þetta efni verður hægt að gera,
þegar búið er að setja í allar stöður við skól-
ana. Fjöldi kennara hefur verið endursettur
eða skipaður í stöður, þar sem hin nýju lög
um réttindi og skyldur embættismanna gera
ráð fyrir, að embættismenn eigi rétt á að fá
úr því skorið eftir eins árs starf, hvort þeir
skuli skipaðir eða settir og ef ekki er mælt
með skipun, þá skuli starfið auglýst. Mennta-
málaráðuneytið hefur strangt eftirlit með, að
því ákvæði sé framfylgt.
Nýir skólar:
Tveir nýir skólar hófu starf í Reykjavík í
haust, kenndir við Eskihlíð og Háagerði.
Enn fremur nýr gagnfræðaskóli, er starfar í
fyrrverandi húsnæði Iðnskóla Reykjavíkur.
Nemendur hans eru þeir nemendur gagn-
fræðaskólanna í Reykjavík, sem ætla sér að
taka landspróf miðskóla á næsta vori.
Þá hefur nýr heimavistarskóli hafið starf í
Svarfaðardal í Eyjafirði og í byrjun síðasta
skólaárs hóf heimavistarskóli Mýrasýslu að
Varmalandi í Borgarfirði starf sitt, sem kunn-
ugt er. Er það mesta átak, sem gert hefur
verið til þess í þvi að sameina mörg skóla-
héruð um einn sameiginlegan, fullkominn
barnaskóla.
30. okt. 1955.
En í gubsbœnum ekki Jjeim !
Þetta gerðist í Noregi. Ungur maður einn
kom inn í veitingahús í bæ einum og bað
um eitt glas af sterku öli. „Nei,“ svaraði veit-
ingamaðurinn, „þú hefur nýlega fengið öl-
æði, og ég veiti þér ekki framar.“ Tveir ung-
ir menn komu inn á meðan. Þeim var þegar
vísað til sætis og veitt það, er þeir báðu um.
Hinn stóð kyrr í sömu sporum og liorfði
á þá. Þegar þeir voru búnir og gengnir út,
ávarpaði hann veitingamanninn og mælti:
„Fyrir sex árum var ég á aldur við þá. Eg
var efnilegur maður. En nú er ég aumingi,
bæði á líkama og sál. Þér kennduð mér að
drekka. Hér naut ég þess drykkjar, sem fór
með mig. En seljið mér nú samt eitt glas
eða tvö glös. Þá fer ég. Um mig er engin
von framar. En þessum ungu mönnum má
bjarga. Veitið mér og látið mig fara veg
allrar veraldar, en í Guðs bœnum ekki
þeim!“
Veitingamaðurinn komst við af þessum
orðum. Hann titraði af skelk og mælti um
leið og hann rétti frá sér ölílátið: „Guð
hjálpi mér! Eg hef breytt illa, en þetta skal
verða síðasti áfengisdropinn, sem ég sel." —
Hann efndi heit sitt, hætti við vínveitingar
og varð bindindismaður.
— Menneskevennen.