Heimili og skóli - 01.02.1956, Qupperneq 28
22
HEIMILI OG SKÓLI
Fimmtugir.
Þann 30. des. sl. varð fimmtugur
Asgeir P. Sigurjónsson, kennari í Dal-
vík. Ásgeir er ættaður úr Hornafirði,
bóndasonur þaðan, og ólst upp við
sveitastörf. En um tvítugsaldur fór
hann að heiman, og var þá förinni
heitið norður í land. Stundaði hann
fyrst nám í Menntaskólanum á Akur-
eyri, og tók þaðan gagnfræðapróf, en
síðan fór hann í Kennaraskólann oe,
lauk þaðan kennaraprófi vorið 1932.
Að loknu kennaraprófi var Ásgeir
skipaður kennari við barnaskólann í
Dalvík og hefur verið þar síðan. Ásgeir
er hið mesta lipurmenni, prúður og
glaður í framkomu.
Samstarfsmaður hans um langt skeið,
Helgi Símonarson, nú bóndi á Þverá,
lýsir honum svo m. a. í Degi 12. s. 1.:
„Mér virtist Ásgeir oft hugkvæmur og
frjór í starfi. Hann fann upp á ýmsu,
sem gerði námið léttara og skemmti-
legra. Og hjartahlýja hans og skiln-
ingur á þörfum barnanna greiddu hon-
um götu að sálum þeirra, ekki sízt
þeirra, sem yngst voru. Enda mun
sanni næst, að Ásgeiri láti hvað bezt
að kenna smábörnum. Eru það út af
fyrir sig ágæt meðmæli“. Ber þessi sam-
starfsmaður honum ágætt orð í hví-
vetna.
Hjörtur L. Jónsson, skólastjóri í
Glerárþorpi, Akureyri varð fimmtug-
ur 31. jan. s.l. Hjörtur er Strandamað-
ur að uppruna, frá Broddadalsá í
Strandasýslu og ólst þar upp við kald-