Heimili og skóli - 01.02.1959, Side 8

Heimili og skóli - 01.02.1959, Side 8
9 HEIMILI OG SKÓLI Heimilin og úl vai piA Útvarpið er undursamlegt menn- ingartæki og eitt a£ furðuverkum síð- ari alda, og raunar allra alda. Menn- ingargildi þess fer þó á hverjum tíma eftir því, hvernig á er haldið. Það má nota það til að afmanna heilar þjóðir. En um þá neikvæðu hlið útvarpsins verður ekki rætt hér. Þessi mikla menningarstofnun veld- ur í raun og veru aldahvörfum í miklu ríkara mæli en til dæmis sím- inn. Hún færir í einni svipan þjóðir heimsins saman meir en áður hafði þekkzt. Hún brúar allar fjarlægðir og kemur afskekktustu dalakotum í lif- andi og náið samband við umheiminn. Útvarpið er eitt af hinum miklu ævin- týrum 20. aldarinnar. Það býr yfir ótæmandi möguleikum til að mennta og manna þjóðir og einstaklinga, til að fræða og göfga, og síðast en ekki sízt til að færa einstaklinga og þjóðir sam- an, og efla bræðralag allra manna. En þótt undarlegt sé, hefur útvarp- ið einnig sínar neikvæðu hliðar, og er svo raunar um marga góða hluti. Ég ætla ekki hér að ræða dagskrá útvarps- ins nema að litlu leyti. Þótt ýmislegt megi að henni finna, er talsverður hluti þeirrar gagnrýni, sem fram hefur komið, frekar ómerkilegt nöldur þar sem hver talar frá sínum þröngu bæjardyrum. T. d. hið þráláta nöldur um hina æðri tónlist. Það væri miklu meiri ástæða til að gagnrýna út- varpið fyrir flutning hinnar ómerki- legu og menningarsnauðu tónlistar, sem raunar á ekkert skylt við list. Raunar hygg ég að dagskráin sé eins góð og sanngjarnt er að krefjast hjá svo fámennri þjóð. En annars ætlaði ég hér að ræða lítið eitt um útvarpið og heimilin. Hefði útvarpið komið í lok kvöld- vökutímabilsins og getað tekið beint við af þeim, eru líkur til, að það hefði orðið enn meiri menningargjafi á heimilunum en það kannski er nú. En í millitíðinni höfðu heimilin sundrast að verulegu leyti. Og þegar það tók til starfa, var það ekki svo öflugt, að það gæti safnað ungum og gömlum saman við heimilisarininn. þar vantaði að verulegu leyti unga fólkið, að minnsta kosti í þéttbýlinu. Það hafði eignast ný áhugamál. Samt sem áður er útvarpið ein- hver merkilegasti og áhrifaríkasti þjóðskólinn, sem við eigum. En á slík- um skóla hvílir mikil ábyrgð. Og nú ætla ég að benda á nokkrar veilur út- varpsins. Ég ætla fyrst að minnast á fréttirnar, sem berast daglega og oft á dag inn í hvert einasta heimili á landinu, eink- um erlendu fréttirnar. Þær sýna því miður oft ranghverfuna á því, sem er að gerast í heiminum. Ég á ekki við að þær séu hlutdrægar í venjulegum skilningi, heldur hitt, að þær sýna okk- ur yfirleitt það ljótasta, hryggilegasta og oft það ömurlegasta, sem er að ger-

x

Heimili og skóli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.