Heimili og skóli - 01.02.1959, Qupperneq 11

Heimili og skóli - 01.02.1959, Qupperneq 11
HEIMILI OG SKÓLI 5 Nú vil ég unclir lokin, skjóta fram einni spurningu til íhugunar. Á út- varpið að leitast við að þóknast öllum? Gera öllum til hæfis? Eða á það að fara sínar eigin götur og hafa sína eig- in sjálfstæðu stefnu, hvað sem misvitr- um óskum okkar hlustenda líður? Það er trúlegast, að þarna verði það að sigla milli skers og báru, þótt það sé ekki alltaf vandalaust. Útvarpið á að vera hlutlaust í við- kvæmum málum svo sem stjórnmál- um og trúmálum, en það má ekki vera hlutlaust í menningarmálum almennt. Það getur ráðið geysilega miklu um marga hluti, bæði beint og óbeint, einkum þó óbeint. T. d. tónlista- smekk, bókmenntasmekk, málfar, svo og á almenningsálitið á ýmsum svið um Útvarpsstöðvum heimsins er fengið geysilega mikið vald í hendur, vald yfir mannssálum. Ef þessir möguleik- ar væru t. d. nýttir í þjónustu friðar og bræðralags, myndum við eygja nýja tíma. Utvarpið er því ein af vonum mannkynsins. Ef hlustendur á íslandi væru spurð- ir að því, hvort þeir vildu missa út- varpið, myndi nálega hvert einasta, heimili svara því neitandi. Þetta sýnir menningargildi þess þrátt fyrir allt, fræðslugildi og skemmtunargildi þess. Ef það er í viturra og víðsýnna manna höndum, má væntanlega bæta úr þeim göllum, sem á því eru. En þar er þó þáttur hlustenda engu minni, ef það á að vera sannarlegur menningar- gjafi á heimilum landsins. H. J. M. Flest er það eins Maður nokkur bauð kunningja sínum heim til sín til miðdegisverðar. Gesturinn veitti því athygli, að húsbóndinn heilsaði konu sinni með kossi, þegar hann kom heim og lét um leið orð falla um, að alltaf væri hún jafn falleg. Að lokinni máltíð þakkaði hann henni fyrir matinn með kossi, og hældi matnum á hvert reipi. Seinna spurði gesturinn vin sinn, hvort hann léti alltaf svona vel að konu sinni. „Já, auðvitað, svona hefur það gengið til f 20 ár, og þess vegna hefur hjónaband okkar alltaf verið farsælt." Þetta þótti gestinum merkilegt. Hann sagð- ist ekki hafa kysst konuna sína í mörg ár. En nú er bezt að breyta til,“ sagði hann. Þegar hann svo kom heim um kvöldið, faðmaði hann konu sína. „Ástin mín, þú ert alltaf jafn falleg," sagði hann, og kyssti hana rembingskoss. En nú brá svo við, að kona hans fór að gráta. „Hvað gengur að þér, elskan mín?“ spurði hann. „Æ, það hefur allt gengið svo illa í dag. Drengurinn er búinn að fá mislinga, vatns- leiðslan bilaði, kjötið, sem ég fékk úr kjöt- búðinni er alveg óætt, og svo kemur þú full- ur heim.“ Brunaliðið í litlum bæ í Þýzkalandi vant- aði tilfinnanlega peninga til að kaupa vatns- slöngur. Loks varð það að ráði að senda svo- hljóðandi auglýsingu í hvert hús í þorpinu: „Ef við fáum ekki með samskotum nægilega peninga til að kaupa vatnsslöngu til slökkvi- stöðvarinnar, neyðumst við til að efna til hljómleika." Þeir fengu næga peninga. Ljósmóðir ein, sem var að koma heim, heyrði að dóttir hennar, sjö ára gömul, var að svara í símann: „Já, þetta er hjá ljósmóðurinni. — Nei, hún er ekki heima sem stendur. En hvað er langt á milli hríðanna.“ — F. A.

x

Heimili og skóli

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.