Heimili og skóli - 01.02.1959, Síða 12
6
HEIMILI OG SKÓLI
Arngrímur
Kristj ánsson
Fáein
minningarorð
Þann 5. febrúar s. 1. andaðist í
Reykjavík, Arngrímur Kristjánsson,
skólastjóri Melaskólans á 59. aldurs-
ári. Hann er fæddur að Sigríðarstöð-
um í Ljósavatnsskarði 28. september
árið 1900. Foreldrar hans voru hjónin
Kristján bóndi Skúlason á Sigríðar-
stöðum og Unnur Jóhannsdóttir frá
Skarði í Grýtubakkahreppi. En Arn-
grímur ólst að mestu upp hjá Jóhanni
afa sín- á Skarði og þótti jafnan mikið
til hans koma.
Arngrímur varð búfræðingur frá
Hvanneyri vorið 1919, en settist síðan
í Kennaraskólann og lauk prófi þaðan
vorið 1923. En eftir það fór hann oft
utan bæði til Norðurlanda og Eng-
lands, til að kynna sér skóla- og
kennslumál. Hann lærði garðrækt hjá
Einari Helgasyni og vann jafnan að
þeim hugðarmálum sínum á sumrin,
og hefur hann plantað mörgum falleg-
um blómum og trjám í skrúðgarða
Reykjavíkur.
Haustið 1923 varð hann kennari við
Miðbæjarbarnaskólann í Reykjavík,
sem þá var eini barnaskóli bæjarins.
Síðar varð hann skólastjóri við Skild-
in^anesskólann og árið 1946 varð
hann skólastjóri við Melaskólann og
var það til dauðadags.
Arngrímur hefur mjög tekið þátt í
opinberum málum. í félagsmálum
kennara hefur hann jafnan staðið í
fremstu víglínu og alltaf gunnreyfur
baráttumaður. Hann heíur meðal
annars mjög tekið þátt í stjórnmálum.
Hefur nokkrum sinnum verið í fram-
boði fyrir Alþýðuflokkinn og bæjar-
fulltrúi fyrir þann flokk í Reykjavík.
En í hvívetna hefur hann verið boð-
inn og búinn að leggja góðum málum
lið, og hefur t. d. komið mjög við sögu
barnaverndar og annara mannúðar-
mála. Hann var lengi formaður Sum-
argjafar í Reykjavík og formaður
Barnaverndarráðs íslands. í stjórn
Sambands íslenzkra barnakennara var