Heimili og skóli - 01.02.1959, Side 19

Heimili og skóli - 01.02.1959, Side 19
HEIMILI OG SKÓLI 13 köst, sem einkenna fyrri aldursskeið, og hinn svonefndi „þrjózkualdur" er liðinn hjá. Hvort börnin eru alveg laus við þessar sterku tilfinningasveifl- ur, svo sem reiði og annan óhemju- skap, veltur á því hvernig foreldrarn- ir hafa brugðizt við slíkum fyrirbær- um. Ef foreldrarnir hafa tekið þannig á þeim, að börnin hafa fengið að „rasa út“ og hreinsa hug sinn, er rnálið af- greitt. En hafi þannig til tekist, að börnin byrgi reiði sína inni, þar sem hún grefur um sig og veldur tor- tryggni, beiskju og vonbrigðum, er öðru máli að gegna. Þessi innilokun hinna sterku tilfinninga geta valdið ótta, og til þessa má rekja ýmsa erfið- leika í sálarlífinu. Þótt alloft verði vart ótta í ýmsum myndum hjá fimm ára börnum, eru þó ýmsir aðrir erfiðleikar á undanhaldi, eða hverfa 'með öllu, og má þar til nefna, að börnin eru nú nálega hætt að sjúga fingur sina. Þau halda sér al- veg þurrum um nætur, og þá ekki síð- ur á daginn. Þau eru nú í eins konar andlegu jafnvægi, þangað til nýir erfið- leikar koma í sambandi við tannskipt- in. Ein af vinkonum mínum lagði leið sína til síns gamla skóla til að láta skrá þar son sinn, fyrsta barn sitt. Fjögra ára tvíburar, sem hún átti, fengu að fylgjast með henni. Þegar hún kom til skólans, kom það í ljós, að gamli reikningskennarinn hennar, var orðinn skóla- stjóri. Hann þekkti hana í einni svipan og tók mjög innilega á móti lienni. „Nei, það var gaman að sjá þig hér aftur, Lína,“ sagði hann, og ég sé að þú hefur loks- ins lært að margfalda." Alltaf hið jákvæða Dag nokkurn er ég kom hlaupandi heim og klagaði félaga minn, Einar, fyrir móður minni, sótti hún gamlar vogarskálar og kassa með kubbum. „Nú skulum við koma í leik,“ sagði hún. „Fyrst látum við einn kubb á aðra skálina fyrir hvern galla, sem þú telur að Einar hafi. Nefndu nú eitthvað.“ Ég fór að hugsa mig um og nefndi ýmislegt, sem ég fann honum til foráttu, og alltaf var lagður kubbur á skál- ina fyrir hvern galla Einars. „Segðu mér nú frá einhverju góðu í fari hans,“ sagði mamma. „Lánar hann þér ekki stundum þríhjólið sitt? — Gefur hann þér ekki stundum brjóstsykur, þegar hann á sjálfur eitthvað?“ „Jú,“ sagði ég hikandi. Nú var lagður einn kubbur á hina skálina fyrir hvert einstakt, sem gott var í fari Einars. Og nú fór ég að brosa, því að alltaf varð kostaskálin þyngri ogþyngri. Ég hef oft síðan hugsað um þetta litla at- vik. Þessi leikur með vogarskálarnar hefur setið í mér. Og mér kemur hann alltaf í hug, þegar ég tek að gagnrýna og finna að ein- hverjum samferðamanna minna. Ég reyni þá alltaf að finna hið góða í fari hans, til að vega upp á móti göllunum. JJ- Leifur litli var kominn á skólaskyldualdur. Móðir hans hafði varið miklum tíma til að skýra honum frá, hve gaman væri í skólan- um, frá öllu því, sem hann fengi að læra, um alla góðu og skemmtilegu félagana, sem hann myndi eignast. Að lokum var Leifur orðinn svo hrifinn og barmafullur af til- hlökkun, að hann fór í skólann hinn fyrsta morgun ljómandi af gleði. Næsta morgun kom móðir hans inn til hans, vakti hann og sagði, að nú yrði hann að leggja af stað. „Hvert?" spurði sá litli. „Auðvitað í skólann," sagði móðir hans. „Hvað?“ spurði drengurinn. „Á ég að fara aftur í skólann?"

x

Heimili og skóli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.