Heimili og skóli - 01.02.1959, Síða 22

Heimili og skóli - 01.02.1959, Síða 22
16 HEIMILI OG SKÓLI við þá samningu námsskrár, sem nú stendur yfir1. Það er allt annað fyrir kennara afbrigðilegra barna að hafa námsskrá til að fara eftir, sem byggð Magnús Magnusson. er á réttmætum kröfum til þeirra og nemendanna heldur en að berjast við að kenna það, sem gert er ráð fyrir að allir nemendur læri, og verða síðan að gefast upp við að ná settu marki. Slíkt hlýtur að liafa áhrif á starfið og bekkj- arandann. Takmark allrar fræðslu er að þroska þá hæfileika, sem fyrir hendi eru hjá hverjum einstaklingi, þess vegna má ekkert fara forgörðum, og allra sízt, þegar hæfileikar eru tak- markaðir. Sá maður, sem alltaf hefur beðið lægri hlut fyrir viðfangsefnum skólanna á barns- og unglingsaldri, gensur ekki með sama hugarfari til starfs á fullorðinsárum og hinn, sem sigraði í hverri viðureign við námið. Sjálfstraust og eðlileg starfsgleði hins fyrr nefnda brotnar niður. Sú geta og starfsgleði, sem kann að hafa leynzt í honum, nýtur sín hvergi. Hinn síðar nefndi aflar sér hins vegar sjálfsvirð- ingar, og starfsgleði hans eykst í glím- unni við viðfangsefnið. Af þessu verður ljóst, að námið snýst ekki nema að litlu leyti um einkunnir í námsgreinum og magn þess, sem numið er, heldur er það miklu fremur uppeldisgrundvöllur fyrir heimili og skóla. En til þess að svo geti verið, þurfa þessar stofnanir að þekkja þá þróun, sem fram fer í hverju barni á hverjum tíma og þá hæfileika, hneigð- ir og skapgerð, sem hvert barn býr yfir. Til þess að skýra nánar hvað ég á við, vil ég benda á, að tveir nemendur með jafnháa greindarvísitölu geta haft mjög mismunandi persónulegan hraða, sem kemur fram í starfi. Til þess að fá sem öruggasta mynd af afbrigðilegum börnum, sem síðar er hægt að leggja til grundvallar kennslu og uppeldi þeirra, þarfnast þau rann- sóknar. Rannsóknin er fólgin í gáfna- prófum, skapgerðarprófum, athugun á hegðun, viðbrögðum og öllu atferli í skóla og utan. Þessu til viðbótar er sá þáttur rannsóknanna, sem oft er þýð- ingarmestur, en það er athugun á heimili og uppeldisaðstæðum barns- ins. Kennari, sem fær afbrigðileg börn til meðferðar, er rannsökuð hafa verið af kunnáttumanni, verður að skilja og kunna að meta, hvað býr á bak við þær niðurstöður, sem prófin gefa. Greindarvísitala ('GV. er köld og þögul fyrir þeim, sem ekki skilur það táknmál, sem hún talar hverju sinni. Til hægðarauka nota ég hér GV, þegar ég tala um afbrigðileg börn, þó að hún sé ekki einhlít til að ákveða námsárangur. — Það mun rétt að gera hér lítillega grein fyrir þeim hluta GV, sem að treggáfuðu börnunum snýr. — Próf. Matthías Jónasson segir

x

Heimili og skóli

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.