Heimili og skóli - 01.02.1959, Page 28

Heimili og skóli - 01.02.1959, Page 28
99 HEIMILI OG SKÓLI Fimmtugur: Árni M. Rögnvaldsson skólastjóri Þann 5. febrúar s. 1. átti Árni M. Rögnvaldsson, settur skólastjóri Gler- árskóla á Akureyri, fimmtugsafmæli. Árni er af góðum, svarfdælskum bændaættum. Hann fæddist að Dæli í Svarfaðardal 5. febrúar 1909. Foreldr- ar hans voru, Rögnvaldur Tímóteus Þórðarson, bóndi þar og kona hans Ingibjörg Árnadóttir, bónda að Dæli. Áttu þau hjón mörg fleiri börn, mann- vænleg og dugleg. Árni stundaði nám við Alþýðuskól- ann að Laugum veturna 1927—29. En kennaraprófi lauk liann vorið 1938. olnbogabörnunum. Þessi barnahópur er ekki stór, en nauðsyn á sérskóla fyrir þau er óleyst vandamál. Ég hef reynt að sýna fram á, að margt er hægt að gera fyrir afbrigði- legu börnin að lítt breyttum aðstæð- um. En jafnframt hef ég viljað sýna fram á, að þörf er á breyttum skilningi á því, hvað þessi börn eiga að læra og til hvers þau stunda nám. í millitíðinni hafði hann verið heim- iliskennari á ýmsum stöðum hér nyrðra. Haustið 1938 varð hann skóla- stjóri við barnaskólann á Drangsnesi í Strandasýslu og var þar í þrjú ár. Þá gerðist hann skólastjóri við barnaskól- ann í Grenivík í Suður—Þingeyjars- En 1947 varð hann skólastjóri við barnaskólann á Laugalandi í Eyjafirði. Loks var hann nokkur ár skólastjóri við heimavistarskólann að Árskógi við Eyjafjörð, og nú síðastliðið haust, var hann settur skólastjóri við Glerárskól- ann á Akureyri. Árni er kvæntur Steinunni Davíðs- dóttur kennslukonu frá Hámundar- stöðum við Eyjafjörð og eiga þau þrjú uppkomin börn. Árni Rögnvaldsson er hávaðalaus maður og hlédrægur, en þó greindur vel, athugull og þéttur á velli og þéttur í lund. Hann er samvizkusamur og áhugasamur kennari og prúðmenni hið mesta. Hann hefur verið félagi í Kennarafélagi Eyjafjarðar, síðan hann

x

Heimili og skóli

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.