Heimili og skóli - 01.02.1959, Page 29
HEIMILI OG SKÓLI
23
Stórkostleg jólagjöf
Á 10 ára afmæli mannréttindayfirlýsingar
Sameinuðu þjóðanna var mjög hátíðleg sam-
koma í kennaraskólanum í Vordinborg í
Danmörk. Þar voru mætt skólabörnin úr
Kirkjutorgsskóla, nemendur kennaraskólans
og félag Sameinuðu þjóðanna í Vordinborg.
Samkoma þessi var haldin í tilefni af því,
að skólabörnin í Kirkjutorgsskóla höfðu sett
sér það mark með sölu korta Barnahjálpar
Sameinuðu þjóðanna (UNICEF), að bjarga
200 börnum frá holdsveiki.
Stjórnandi þessarar samkomu og lífið og
sálin í þessu fyrirtæki, var Arne Stinus kenn-
ari. Hann hefur, af brennandi áhuga, unnið
fyrir mannúðarhugsjónir Sameinuðu þjóð-
anna, og er þetta aðeins eitt af mörgu, sem
hann hefur beitt sér fyrir á því sviði.
Samkoman hófst með kvikmynd frá Sam-
einuðu þjóðunum, þar sem leikinn var Eg-
mond forleikurinn eftir Beethoven. Þegar
ljósin voru kveikt, kom í ljós, að salurinn var
nálega fullsetinn af börnum, sem öll báru
fána hinna ýmsu landa Sameinuðu þjóðanna,
81 að tölu.
Lítil stúlka bauð hina 400 gesti velkomna
og mælti meðal annars: „Jafnvel þótt hinir
fullorðnu lifi ekki alltaf eftir mannréttinda-
yfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna, þá viljum
við og jafnaldrar okkar þrátt fyrir það, halda
daginn hátíðlegan. Við trúum á Sameinuðu
þjóðirnar og mannréttindi allra, og við ætl-
um að sýna, hvernig við, bæði börn og full-
orðnir, getum hjálpað til að gera hugsjónir
hóf kennslu hér í byggðarlaginu og
reynzt þar góður liðsmaður. Hann hef-
ur jafnan sótt alla fundi og námskeið,
sem félagið hefur staðið fyrir og auk
þess leitað fanga víðar. Hann er einn
af þeim, sem aldrei þykist vita nógu
mikið eða búa yfir nægilegri tækni í
starfi sínu. Heimili og skóli óskar Arna
til hamingju með þessi tímamót og
þakkar góðan stuðning á liðnunt
árum. H. J. M.
Sameinuðu þjóðanna að veruleika." Síðan
sýndu börnin ofurlítinn norskan þátt um
Sameinuðu þjóðirnar, sem sýndi hvernig öll-
um þjóðum ber að vinna saman.
Þegar þessum þætti var lokið, tók til máls
Arne Stinus og gerði grein fyrir þessum miklu
áformum, að bjarga 200 holdsveikum börn-
um, með sölu á kortum Barnahjálpar Sam-
einuðu þjóðanna. Með sölu 20 korta er hægt
að bjarga einu barni. Börnin þurfa því að
selja 4000 kort til að ná þessu takmarki. Nú
vonast þau eftir stuðningi frá hinum full-
orðnu til að ná þessu marki.
Þessi mikla og göfuga áætlun fékk góðan
hljómgrunn meðal bæjarbúa. Eftir tíu daga
tilkynntu blöð bæjarins, að takmarkinu væri
náð, búið væri að selja 4000 kort — og 800
í viðbót, svo að ná væri hægt að bjarga 240
börnum.
Börnin í Kirkjutorgsskóla voru meira en
hamingjusöm, þegar fræðslustjóri bæjarins
tilkynnti það við hátíðlega athöfn í skólan-
um, að takmarkinu væri náð. Þau voru glöð
yrir að geta gefið sjúkum jafnöldrum sínum
í fjarlægu landi þessa jólagjöf, og það var
einnig uppörvun fyrir þau að taka á mótí
bókagjöfum og merkjum Sameinuðu þjóð-
anna, sem félag Sameinuðu þjóðanna í bæn-
um gaf þeim við þetta tækifæri.
Það er nú hin mikla von skólabarnanna í
Vordingborg, að fleiri skólar fari að þeirra
dæmi.
Börnin í Iíirkjutorgsskóla hafa sýnt það,
að það er hcegt að leggja þarna verulegt lóð
á vogarskálina, og þau hafa einnig sýnt,
hvernig á að fara að því. Frederik Hellum.
Það má að lokum geta þess, að hinn ungi
kennari, Arne Stinus, sem stóð fyrir þessu,
hefur dvalið á íslandi til að kynnast landi og
þjóð, meðal annars íslenzkum skólamálum
og hefur hann skrifað langan greinarflokk í
dönsk blöð, um dvöl sína hér. Eru það hinar
prýðilegustu greinar og mjög vingjarnlegar
í garð lands og þjóðar. Kemur hann þar
meðal annárs inn á handritamálið og land-
helgismálið og hefur þar gott eitt til að leggja.
Spáir hann því, að við munum fá handritin
1974 á 1100 ára afmæli íslandsbyggðar og 100
ára afmæli stjórnarskrénnnar. H. J. M.