Heimili og skóli - 01.02.1959, Page 30

Heimili og skóli - 01.02.1959, Page 30
24 HEIMILI OG SKÓLI Molar - Móðir mín hafði þá uppeldisaðferð, að þegar við börnin höfðum lært sæmilega að greina á milli þess rétta og ranga, tók hún ekki hart á smá yfirsjónum eftir það. Við vorum fjögur systkinin, og mamma lét smíða ofurlítil hundahús, sem hún lét standa á eldhúsbekknum. Og fyrir hvert hús, bjó hún til agnarlítinn gerfihund, af mismunandi tegundum og átti hver tegund að tákna hvert okkar systkinanna. Hverju sinni, sem við brutum settar reglur, eða gerðum eitthvað af okkur, tók mamma þann hundinn, sem átti að tákna sökudólg- inn, og stakk honum inn í „hundahúsið". Aðeins mjög sjaldan þurfti hún að grípa til annarra ráða. Þegar ég sjálf eignaðist börn, tók ég upp þennan sama sið á heimili mínu, og það hafði undursamleg áhrif. Þessi þögula ásökun hefur sparað okkur hjónunum marg- ar áminningar og ásakanir, snoppunga og skammir, sem venjulega reynist allt áhrifa- lítið, þegar til lengdar lætur, en þessi aðferð hefur jafnframt opnað augu barnanna fyrir hinu kátlega og skilur því ekki eftir neina beizkju. E. I. Ég hafði oft heyrt, að þegar böm færu að eta ösku og önnur óhreinindi, væri það vegna þess, að þau vantaði eitthvað í fæðuna. Þegar sonur minn, tveggja ára, fór að eta mold og annað slíkt, fór ég með hann til læknis og spurði hvort hann myndi ekki vanta eitthvað. „Jú, áreiðanlega," sagði læknirinn. „Hann vantar aðeins umhirðu." Sigga litla er dálítið hrædd að sofa ein í barnaherberginu. En manna hennar reynir að hughreysta hana og segir: „Þú þarft ekki að vera hrædd, því að guð verður alltaf hjá þér.“ Sigga litla þegir nú litla stund, en fer síðan inn til foreldra sinna, sem voru nýlega hátt- uð, og segir: „Af hverju getur pabbi ekki sofið inni hjá Gúði, svo að ég geti verið hjá mömmu?" HEIMILI OG SKÓLI TÍMARIT UM UPPELDISMÁL Útgefandi: Kennarafélag Eyjafjarðar. Ritið kemur út í 6 heftum á ári, minnst 24 síður hvert hefti, og kostar árgang- urinn kr. 30.00, er greiðist fyrir 1. júnf. Útgáfustjórn: Hannes J. Magnússon, skólastjóri. Eiríkur Sigurðsson, skólastjóri. Páll Gunnarsson, kennari. Afgreiðslu- og innheimtumaður: Ámi Björnsson, kennari, Þórunn- arstræti 103, Akureyri. Ritstjóri: Hannes J. Magnússon, skólastjóri. Pósthólf 183. Akureyri. Sími 1174. Prentverk Odds Björnssonar h.f. SKÓLASKÝRSLA Heimili og skóla hefur borist skýrsla barna- og gagnfræðaskóla Reykjavíkur yfir skóla- árið 1956—57. Þetta er allmikið rit, 73 blað- síður í stóru broti og skiptist í 21 kafla. Skýrsla þessi flytur mikinn fróðleik um skóla og skólahald Reykjavíkur. Þetta ár voru 10,030 börn og unglingar í öllum skólum bæj- arins og fastir kennarar voru 330 auk margra stundakennara. Þarna eru kaflar um kennslu og kennslu- tæki, próf, ýmiss konar sérkennslu, heilsu- gæzlu, félagslíf í skólunum, bókasöfn og ýmsa aðra starfsemi, sem þar fer fram. Skýrsla þessi er mjög glögg og girnileg til fróðleiks fyrir þá, sem láta sig skólamál ein- hverju skipta. En hér er ekki tækifæri til að rekja hana nánar. Jónas B. Jónsson, fræðslustjóri Reykja- víkurbæjar, ritar formála og er skýrslan tekin saman af skrifstofu hans. Allmargar myndir em í bókinni af skólum bæjarins og ýmsu úr skólastarfinu.

x

Heimili og skóli

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.