Heimili og skóli - 01.04.1971, Page 6
þeim gefinn kostur á að senda börnin í skólann og sums staðar máttu
þau sitja úti í horni, endurgjaldslaust, ef þar voru auð sæti.
Námið var, það sem við nefnum nú landsprófsgreinar, þ. e. lestur,
skrift og lítils háttar reikningskennsla. Námsbækur voru engar og
pappír til skrifta dýr. Var því til lestrar reynt að nota gamlar guðsorða-
bækur, ljóðabækur og íslendingasögur. Við skrift og reikning var griff-
illinn og spjaldið. Þannig lærðu þeir, er síðar bjuggu þjóðina undir
efnaiiagslega byltingu. Nokkrir voru svo lánsamir að hljóta frekara
skólanám, en flestir námu í skóla reynslunnar. Hann þroskaði og þjálf-
aði huga þeirra, sem barnaskólanámið hafði gert forvitna og fróðleiks-
þyrsta. Nokkrir urðu sjálfmenntaðir heimspekingar, er ætíð reyndu að
finna skýringar við fyrirbærum tilverunnar.
Tímar liðu og bamaskólunum fjölgaði. Námskröfurnar jukust og
námið varð fjölbreyttara. Börnin fóru að læra um sögu þjóðarinnar, ná-
grannalöndin og dýr merkurinnar. Sýnt
þótti, að þeir, sem höfðu menntun, stóðu
betur að vígi í lífsbaráttunni, urðu leið-
togar í sínu umhverfi og fyrirmynd ná-
grannanna. Vafalaust hefur það ráðið
nokkru, að þeir auðugu, gátu fremur
sent börn sín til menntunar og ríkidæmi
var mönnum til nokkurra álita og því
keppikefli flestra.
Jafnhliða fækkaði ólæsum og urðu
tíðindi, ef menn kunnu ekki að skrifa
nafnið sitt. Þá fyrst höfðu skólarnir unn-
ið fullan sigur. Barnafræðsia var orðin
undirstaða þess, að einstaklingurinn
væri talinn fullgildur þjóðfélagsþegn.
Kröfur um framhaldsmenntun jukust
hröðum skrefum. Sem afleiðing þess
voru reistir alþýðuskólar, er ásamt ung-
mennafélagshreyfingunni urðu lyftistöng
sveitanna og einnig mannræningjar
þeirra. Þar opnuðust dyr til æðri mennt-
unar og um þær gekk margt gáfað fólk,
er síðar varð aðeins gestkomandi í sinni
fæðingarsveit. Þeim fjölgaði ört, er unnu
fyrir daglegu brauði í hvítri skyrtu. Skól-
Fró sýningardeild yngri barna. arnil' höfðu gefið þeim tilskilinn vitnis-
Nómið var fóbroHð
Almenn fræðsla hefur
mikil áhrif
26
HEIMILI OG SKÓLI