Heimili og skóli - 01.04.1971, Síða 10

Heimili og skóli - 01.04.1971, Síða 10
um lögð af stað í ferðalagið. Ferðafélagav mínir voru þessir: Dúa Hallgrímsdóttir, Herdís Sveinsdóttir, Guðríður Sigurðardótt- ir, Kristín Magnúsdóttir, Þráinn Guðmunds- son og Anton Sigurðsson, — öll kennarar í Reykjavík og Hafnarfirði. Eftir um 5 tíma flug var svo lent á Kennedyflugvelli í New York, og var þá klukkan um 11 að kveldi. Eftir lendingu urðum við að bíða í vélinni í heila klukku- stund, meðan hún var að mjaka sér í óslit- inni röð flugvéla inn að flugstöðvarbygg- ingunni. Þessi töf kom okkur í koll stuttu seinna. Hitinn um borð var óbæri'legur, enda 36 gr. C úti fyrir. Við ætluðum að taka flugvél þarna strax til Chicago, en námskeið- ið stóð í smábænum Decorah í Iowa fylki. Eftir að hafa skilizt við þá Loftleiða- menn að sinni héldurn við með þungar tösk- urnar berandi á afgreiðslu ameríska félags- ins, sem flytja átti okkur til Chicago. Það var afar löng leið og erfið, í þessum hita, sem þarna var. Loksins er við fundum af- greiðsluna, var okkur sagt að vélin væri far- in og næsta vél færi ekki fyrr en kl. 6 morg- uninn eftir. Þetta urðu okkur sár vonbrigði og nú var slegið á ráðstefnu. Þeir Anton og Þráinn fóru til Loftleiða, á meðan við sát- um á föggum okkar. Þeim var sagt að okk- ur skyldi komið á hótel um nóttina. En þar sem ekki voru nema 6 tímar til brottfarar, þá tókum við þann kostinn að dveljast í af- greiðslu Loftleiða á flugvellinum um nótt- ina. Þar lágum við svo á bekkjum og reynd- um að sofna. En lítill varð svefninn þar, bæði vegna umgangs og einnig vegna þess að við vorum eitthvað hrædd um okkur og dót okkar. Þeirri hræðilegu hugsun skaut upp í hópnum, að við kynnum að verða „strá drepin“ þarna um nóttina. — Þannig voru það þreyttir íslendingar, sem morguninn eftir lögðu af stað til Chicago. Var það afar þægilegt þotuflug á 1. far- rými, — vegna seinkunarinnar hjá Loftleið- um. Mi’llilent var í höfuðborg New York- fylkis, Albany, og höfð þar stutt viðdvöl. Albany er mjög fögur og snyrtileg borg yfir að líta. I námskeiði þessu tóku þátt 47 norrænir kennarar, og áttum við að sameinast þeim í Chicago. Fyrst eftir komuna þangað hringd- um við í allar áttir til að hafa uppi á hópn- um og tilkynna komu okkar, en enginn vildi við okkur kannast lengi vel. Eftir mikinn þvæling, bæði gangandi og í leigubílum, fundum við það, sem við leituðum að, heimavist skóla nokkurs, þar sem við skyld- um dvelja fyrsta sólarhringinn. Við fórum í bað og lögðum okkur og sváfum fram til kvölds, enda lítið sofið síðan á Islahdi. Var okkur fagnað þarna sem týndum sauðum og móttökurnar voru samkvæmt því. I Chicago vorum við 2 daga, skoðuðum borgina og fórum á söfn. Þar var gaman að dvelja því margt var að sjá, og komumst við hvergi nærri yfir að sjá allt, sem á þess- um söfnum var. Á öðru safninu var t. d. kolanáma, sem við fórum niður í og gegnum. Einnig var þar þýzkur kafbátur úr heimsstyrjöldinni síðari. Okkur var ekið gegnum eitt af fátækra- hverfum borgarinnar og var það ófögur sjón. Blökkumennirnir, sem þar bjuggu mest- megnis, lágu, sumir hverjir, steinsofandi á gangstéttunum, og jafnvel í göturæsunum. Ruslið fauk þarna um allt og fátæktin og sóðaskapurinn var í hámarki. Þó fer þetta tvennt hvergi nærri alltaf saman, en það gerði það þama. 30 HEIMILI OG SKÓLI

x

Heimili og skóli

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.