Heimili og skóli - 01.04.1971, Page 11

Heimili og skóli - 01.04.1971, Page 11
Annars er Chicagoborg afar fögur, og skemmtigarðarnir á bökkum Michiganvatns- ins eru víðfrægir. Við gengum um þá heilan dag, enda höfðum við orðið blöðrur á öll- um tám og hælum að kvöldi. Decorah, þar sem skólinn er staðsettur, er í Iowa fylki, um 300 mílur norðan við Chicago. Þangað fórum við í „rútu“, þann 29. júní. Var það all erfið ferð, vegna hit- ans, sem reyndist þennan dag 37 g. C og var heitasti dagur ársins, sem komið hafði. Bíll- inn var raunar loftkældur, en samt var okk- ur afar heitt. Við Islendingarnir lögðum, að sjálfsögðu, undir okkur öftustu sætin, og svo kyrjuðum við íslenzk lög mikinn hluta leiðarinnar. Norðmaður, að nafni Arne Torp, söng og með okkur. En hann talaði ís- lenzku eins og innfæddur og kunni ógrynni af íslenzkum lögum og vísum. M. a. söng hann sóló í Þórði kakala, bókarlaust. Á leiðinni var stanzað á tveim stöðum. Borð- að var um hádegið í háskólabænum Madi- son. Þar eru 10 þúsund stúdentar í háskól- anum. Nýlega hafði soðið þar upp úr í stúdentaóeirðum, en ekki urðum við vör við nein merki þess. Undir kvöld var svo komið til Luther College. Skóli sá telur um 2400 stúdenta á veturna. En þar voru aðeins 100 stúdentar á sérstöku námskeiði, auk okkar. Decorah er um 7000 manna norskur inn- flytjendabær. En Norðmenn settust þarna að á árunum 1860—1870. Landslag þarna er hæðótt og skógi vaxið. Há tré, m. a. Hicory, og margvíslegur gróður gefa þess- um hluta ríkisins afar skemmtilegan og hlý- legan blæ. Þeir kalla þetta norð-austurhorn Iow „The Swisserland og Iowa“, — vegna hæðanna. Annars er ríkið ein samfelld slétta meðmaísökrum svo langt, sem augað HEIMILI OG SKÓLI eygir. Maísinn kalla innfæddir Corn. Byggingar á Luther eru flestar nýjar, þær elztu frá 1966. Allt eru það fögur hús og snyrtileg. Húsin eru eitthvað milli 15 og 20, heimavistir fyrir rúmlega 2000 stúdenta, kennsluhúsnæði afar fullkomið með nýjustu tækjum, stórt bókasafn, eða bókhlaða, íþróttahús með 3 sölum og stórri sundlaug, matstofa, stjórnstöð með rafreikni, sem not- aður er við stjórn skólans o. fl. Einnig er fullkominn íþróttavöllur með stúku íyrir um 3000 manns, 20 tennisvellir og fleiri íþróttamannvirki. 011 húsin eru loftkæld og kom það sér vel, því hitinn þennan júlímánuð var alltaf um og yfir 30 gr. C. Á veturna getur frostið komizt niður í 40 gr„ þannig að hitamis- munur er upp undir 80 gr. C. Við fengum nú hvert sitt herbergið, stór og góð, með öllum þægindum, og nú var að því komið, að námskeiðið hæfist. Námskeið þetta kölluðu þeir „American Studies for Scandinavian Educators“, og var þetta hið sjöunda í röðinni. Frá upphafi hafa dvalizt þarna 266 norrænir kennarar, þar af 27 Islendingar. Námskeiðið fór aðallega fram í fyrir- lestrum, og voru þeir um 70 talsins. Voru þeir fluttir á tímanum frá kl. 9—12 f. h. Eftir matinn, sem var milli 12 og 13 gafst þeim, sem vildu, færi á að þjálfa enskan framburð í mjög fullkominni tungumála- stofu. Eftir það fóru flestir í sólbað og sund fram undir kl. 17, en þá var kvöldverður til kl. 18. Enginn matur var svo fyrr en kl. 8 morguninn eftir. Á kvöldin var mikið um alls konar heimboð, þá aðallega til prófess- oranna, sem kenndu okkur. Fyrirlestrarflokkarnir voru margir, en þeir hélztu voru: Amerískt þjóðfélag, — 31

x

Heimili og skóli

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.