Heimili og skóli - 01.04.1971, Síða 12

Heimili og skóli - 01.04.1971, Síða 12
stjórnarfar og efnahagslíf. Bókmenntir blakkra og hvítra, fátækt og ríkidæmi, ameríska kirkjan, Indíánar og blökkumenn, skólakerfið o. m. fl. Allt þetta var svo krydd- að með stuttum ferðum til nærliggjandi staða. Þarna var um mikinn fróðleik og skemmtilegt nám að ræða, þrátt fyrir að sumir hverjir næðu ekki öllu, sem sagt var, sökum málsins. Farnar voru skemmti- og kynnisferðir í 2—3 daga og ferðast í „rútunni“ okkar. M. a. fórum við til ljorgarinnar Dubuque, þar sem okkur var kynnt amerískt stórfyrir- tæki, Inter State Power Co., sem selur raf- magn um þennan hluta Bandaríkjanna. Það var allt mjög stórhrikalegt í sambandi við rekstur þessa félags. Kom m. a. fram, að for- stjóri þess hefur tæpar 25 millj. króna í árs- laun. Þar var okkur sýndur rafeindaofn, sem skilaði tilbúnu beikoni á 5 sek. og spældu eggi á 3 sekúndum. — Einnig fórum við norður til Minnea- polish, þar sem við m. a. fórum í leikhús og sáum The Tempest eftir Shakespeare. Is- lendingur, Leifur Jósefsson, sem býr í Minneapolis var með okkur heilan dag, og þau bæði hjónin, og sýndu okkur borgina og voru afar ánægð yfir að hitta Islendinga. Þau flögguðu með íslenzka og bandaríska fánanum fyrir okkur á heimili sínu. Leifur hefur aldrei til Islands komið, en talaði samt dálítið í málinu. Yið skoðuðum barna- og gagnfræðaskóla í Decorah. Þetta eru tvær sjálfstæðar stofn- anir en standa gegnt hvorri annarri við sömu götu. Það, sem mesta athygli mína vakti voru margvísleg kennslutæki, sérstaklega í gagnfræðaskólanum. Þar voru í einni kennslustofu t. d. yfir 50 rafmagnsreikni- vélar og sami fjöldi af rafknúnum kúlu-rit- vélum. Þá var og myndvarpi í hverri stofu í báðum þessum skólum. Stór og fullkomin eðlis- og efnafræðikennslustofa var og í hærri skólanum. I barnaskólanum, og raun- ar hinum einnig, læra nemendurnir ein- göngu það sem við köllum hér mengjareikn- ing. Yoru nýútkomnar bækur í því efni og fékk ég sýnishorn af þeim. Bækur þessar eru sérstaklega fallegar og virðast mjög að- gengilegar og skemmtilegar og er mikill munur á þeim eða því, sem við höfum verið að hefjast handa með hér heima. Mér skilst að Svíar hafi tekið þær mjög til fyrirmynd- ar við samningu sinna kennslubóka. Kennarar okkar á námskeiðinu voru, að sjálfsögðu margir. Voru þeir allir mjög skemmtilegir og almennilegir, og eins og þeir ættu í okkur hvert bein. Sá, sem ábyrgð bar á námskeiðinu, Dr. Warren G. Berg hafði svo sannarlega í mörgu að snúast þennan mánuð. Allt var fyrirfram skipulagt og þótti okkur á stundum stundaskráin heldur ströng. Dr. Berg og kona hans, Jane, voru okkur sem nærgætnir foreldrar, buðu okkur til sín oftar en einu sinni (47 manns) og óku okkur á einkabíl sínum, sem var venjulegur amerískur stationbíll. Einu sinni komum við 16 út úr honum, — þannig að haft var við orð, að þarna hefði Dr. Berg sett heimsmet í stöflun. Seinasta sunnudaginn á Luther College kom íslenzk kona, Jórunn Sweeney, sem býr í smábænum Lansing við Missisippifljótið, og sótti okkur íslendingana. Höfðum við frétt af henni en ekki náð sambandi við hana fyrr en seint á námskeiðinu. Þau hjónin fóru með okkur útá Missisippi á fljótabáti sín- um og dvöldum við þar allan daginn frá morgni til kvölds. Var báturinn lestaður með margs konar matvæli og svalandi drykki. HEIMILI OG SKÓLI 32

x

Heimili og skóli

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.