Heimili og skóli - 01.04.1971, Blaðsíða 14

Heimili og skóli - 01.04.1971, Blaðsíða 14
í hótelinu. Varð þetta til þess að þær læstu sig svo kyrfilega inni. Það mun haf haft sín áhrif, að fyrr um daginn, er þær voru í verzl- un einni, sem kvenfólki er gjarnan hent, að þar kom hlaupandi inn negri einn með hníf mikinn uppreiddan og elti stúlkukind, sem undan honum rann. Er þetta gerðist í búð- inni fengu allir skipun frá afgreiðslufólki um að hreyfa sig ekki. Stúlkan, sem bófinn elti fleygði veski sínu til afgreiðslumanns, en þá gafst bófinn upp og hljóp út. Vinkon- ur mínar urðu auðvitað afar hræddar, — og þegar svo sírenuvælið ásótti þær um kvöldið gerði það þær frávita af skelfingu. Með karlmannlegu hugrekki okkar tókst okkur að telja í þær kjark, en ekki veit ég hvort þær hafa sofið mikið um nóttina, bless- aðar. Hitt var það, að morguninn eftir fór- um við að grennslast um væl þetta, og kom í ljós, að slökkvistöð hverfisins var í næsta húsi við hótelið. Hafði óvenju mikið verið um útköll umrætt kvöld. Næst lá leið okkar til New York, og fór- um við það með rútu frá Grey Hound. Vor- um við karlmennirnir þar í 3 daga en kven- fólkið þurfti deginum meira til verzlunar- ferða. Skoðuðum við helztu staði í þeirri miklu borg, sigldum kringum Manhattan, fórum upp í hæsta hús í heimi, sem þá var, Empire State 381 m, heimsóttum Samein- uðu þjóðirnar o. fl. Við þremenningarnir héldum svo heim með Rolls Roys flugvél Loftleiða, en Loft- leiðir þekktu allir í U.S.A. þó ekki vissu þeir að Island væri til. A íslenzka grund stigum við svo þann 7. ágúst eftir 6 vikna dvöl í Vesturheimi. Mikill var munurinn á veðráttunni og viðbrigði fyrst í stað, að koma úr 30—37 stiga hita í sveljuna hér heima. Þrátt fyrir það var afar gott að vera kominn heill á húfi aftur heim til íslands. Það var sagt innan íslenzka hópsins, að sjaldan muni jafn samhentur hópur, og þarna var á ferðinni, ferðast saman. —- Eitt er víst, að dreifbýlismaðurinn að norðan, sem pakkana missti á gólfið í Utsýnarskrif- stofunni, eignaðist einhverja sína beztu vini í þessari ferð. Vonandi er, að íslenzkir kennarar noti sér þessar námsferðir, og vil ég hvetja þá til að sækja um þær. Ollum, sem gerðu mér kleift að fara þessa mína fyrstu utanlandsreisu, flyt ég alúðar þakkir, og samferðarmönnunum og öllum öðrum er gerðu hana ógleymanlega flyt ég beztu kveðjur með ósk um að eiga eftir að hittast aftur á þessum fagra og indæla stað, að Luther College. — Dalvík 8. febrúar 1971. TU Qnmnns Enskur diplomat, sem starfað hafði í öllum höfuðborgum Skandinavíu, var spurður, hvar honum hefði líkað bezt. — Það albezta væri, ef Kaupmannahöfn yrði flutt þangað sem Stokkhólmur er og byggð Norð- mönnum. ★ — Hefur þú nokkurn tíma gert nokkuð fyrir börnin þín? spurði frú Olafía hinn lata mann sinn. — Gert nokkuð fyrir þau? tók maðurinn af- sakandi upp fyrir henni. — Já, því held ég sann- arlega fram! Er það kannske ekki framtakssemi minni að þakka, að þau eru yfirleitt til. 34 HEIMILI OG SKÓLI

x

Heimili og skóli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.