Heimili og skóli - 01.04.1971, Síða 17
HENRY FORD II
Hvernig: g-etur ungra kyu-
slóðin stuðlað að bættu
þjóðfélagri?
ENGINN VAFI er á því, að mestur hluti
hins siðmenntaða heims á í baráttu við
trúna á sjálfan sig. Hinar róttæku stúdenta-
óeirðir, sem skipa forsíðutitla blaðanna,
eru aðeins hinn sýnilegi tindur hrikalegs
jökuls. Olgan, sem ríkir í háskólunum, er
hvarvetna til staðar og hefur fyrir löngu
breiðzt til menntaskólanna. I Bandaríkjun-
um höfða uppþot unglinganna til vanda-
niála stórborganna, til baráttunnar gegn fá-
tæktinni, baráttunnar fyrir borgararéttinum
og til mótmæla gegn stríðinu í Víetnam.
En unga kynslóðin er ekki ein um að
stofna til óeirða. Bréfberar, slökkviliðs-
menn, lögregluþjónar og annað þjónustu-
fólk skipuleggur verkföll. Óbreyttir stétta-
félagsmenn þverskallast við boðum og bönn-
um yfirboðaranna, prestar bjóða biskupum
birginn og biskupar Vatikaninu.
Hægt er að skoða þessi fyrirbrigði á
tvennan hátt, sem áreiðanlega er jafnréttur.
Segja má, að fyrir fjölda fólks er hollusta
við stofnanir þjóðfélagsins og hlýðni við
skrifuð og óskrifuð lög þess, ekki annað en
sjálfsagður hlutur. Hvað sem manni finnst
um þetta vandamál eða annað, verður mað-
ur að horfast í augu við þá staðreynd, að
slíkt almennt hlutleysisviðhorf er mjög nei-
kvætt. Ef ekki væru til reglur, sem fjöldinn
færi eftir, yrði ein allsherjar ringulreið, en
lögregluvaldið byggist á ofbeld og ótta.
Meiri glæta er þó í hinni skýringunni
varðandi upplausnaranda nútímans. Það
má segja, að fólk, hvar sem er í heiminum
— og sérstaklega unga fólkið — vilji ekki
lengur lúta boðum og bönnum, sem gera líf-
ið erfiðara og gleðisnauðara en þyrfti að
vera. Þetta fólk metur innihald lífsins og
ekki sízt samvistir við annað fólk meira,
heldur en þjóðfélagslega stöðu og efnisleg
gæði.
Frá þessu sjónarmiði séð, er uppreisnar-
andinn aðeins staðfesting á hinu jákvæða í
manninum. Hann er krafa um frelsi og árás
á alla harðstjórn.
Það er í þessu, sem speglast vonin um
betri heim, hamingjusamara líf fyrir okk-
ur öll, réttlátari þjóðfélagsskipun með
meira frelsi fyrir einstaklinginn.
Þess vegna trúi ég, að hinar siðvæddu
þjóðir nálgist tímamót. Uppreisnarandinn
getur eyðilagt okkur eða frelsað okkur.
Hann getur leitt til algerrar ringulreiðar og
kúgunar, en hann getur líka auðgað líf
mannsins og gert það fullkomnara, heldur
en við getum gert okkur í hugarlund í dag.
heimili og skóli
37