Tækni - 01.06.1943, Side 4
Vér erum gjarnir á að tildra oss upp
sem einstaklingum á kostnað heildarinn-
ar í stað þess að byggja upp heildina
með einstaklingum. Þetta má ekki við
svo búið sitja. Vér fámenn þjóð höfum
aðeins efni á að lifa með því að neyta
allra þeirra starfskrafta, sem oss eru
gefnir, sameiginlega og á hinn hagkvæm-
asta hátt.
Rangfærslur og andstöður segja ef-
laust einhvern tíma til sín, í hvaða grein
sem er, en hvergi kemur hið rétta og
ranga eins skýrt og áþreifanlega fram
og í tækninni. Menn tækninnar hljóta
því að verða brautryðjendur þess, sem er
það, sem það sýnist vera: þess sanna og
fullkomna.
Oss eru vissulega nógir kraftar gefnir
til að vinna stórvriki, en þeim kröftum
má ekki sóa í fánýtt froðusnakk ,eða inn-
byrðis andstæð öfl, sem veikja samstöðu
vora og geta valdið brestum í þjóðar-
heildinni. Nei, vér verðum að milda mál-
stað vorn, svo að innbyrðis andstæð öfl
verði ekki meiri en góðu hófi gegnir. Þá
mun sleitulaus viðleitni vor til að ráða
rúnir náttúrunnar og háleit hugsjón
mannsandans veita oss aðgang að öllum
dyrum.
Friðg. G.
Þórður Runólfsson:
Aílyíiríœrsla írá aílvél til vinnuvélar
eöa driíkeríis.
Það mun því miður vera allt of algengt
hér á landi, að eigendur fyrirtækja, sem
vélar nota, geri innkaup sín á aflvélum og
vinnuvélum og framkvæmi annan undir-
búning í sambandi við nýbyggingu, stækk-
un eða endurbyggingu fyrirtækis síns án
þess að hugsa nokkuð um það, á hvern hátt
haganlegast og ódýrast verður að yfirfæra
aflið frá aflvélinni til vinnuvélanna eða
haga drifkerfinu í heild. Er hér oft hugs-
unarleysi, en þó langoftast þekkingarleysi
um að kenna.
Sérstaklega ber að athuga drifbúnað í
sambandi við dieselhreyfla og aðra olíu-
hreyfla, sem verða að njóta utanaðkom-
andi afls við ræsingu. Þessu er nokkuð á
annan veg varið með ýmsar aðrar aflvél-
ar, svo sem túrbínur, eimvélar og raf-
hreyfla, sem hægt er að ræsa hægt og ró-
lega með vaxandi hraða og eigin afli.
Við ræsingu olíuhreyfla er aðallega um
þrjár aðferðir að ræða:
1. Ræsing með handsveif. Einungis not-
uð á litlum, hraðgengum hreyflum.
2. Ræsing með rafmagni. Einnig mest
notuð á litlum hreyflum.
3. Ræsing með þrýstilofti. Notuð á með-
alstórum og stórum hreyflum.
Ef handræsing er notuð, er ræsiaflið,
eins og gefur að skilja, mjög takmarkað.
Við rafmagnsræsingu og þrýstiloftsræs-
ingu eru hjálpartækin ævinlega höfð svo
einföld og lítil sem kostur er til þess að
takmarka notkunarþörf utanaðkomandi
afls. Það er því skiljanlegt, að olíuhreyfil
er ekki hægt að ræsa, nema svo sé um bú-
2
T Æ K N I