Tækni - 01.06.1943, Page 11
Tannhjól með beinum tönnum og skátönn. (Borsig).
álits verksmiðju þeirrar, sem dælan er frá,
og haga tengingu eftir því.
Ef vinnuvélin er bulludæla, verður nægi-
lega víður milligangur að vera milli sog-
og þrýstirúms dælunnar, og er gangi þess-
um ekki lokað, fyrr en hreyfillinn hefur
náð fullum snúningshraða. Þess ber og að
gæta, að stangaþétti dælunnar sé ekki of
hert, með því að það eykur mjög ræsivið-
námið.
Þjöppur (loft- og kæliþjöppur) verða að
hafa sogloka, sem hægt er að lyfta og gera
á þann hátt óvirka, meðan hreyfillinn er
að ná fullum snúningshraða.
b. Fjaðrandi tenging er notuð, er hætta
er á snöggum álagssveiflum eða höggum í
vinnuvélinni. Er tenging þessi þannig úr
garði gerð, að hún dregur úr höggunum,
svo að þau mæða ekki eins á sveifarás
hreyfilsins og jafngengi hans verður betra.
c. Sveigjanleg tenging er notuð, ef ásar
aflvélarinnar og vinnuvélarinnar standast
ekki alveg á eða eru ekki í beinni línu hvor
við annan. Slíkt getur þó ekki gengið,
nema um tiltölulega lítinn snúningshraða
og afl sé að ræða, og ber í þeim tilfellum
að gæta stakrar varúðar og um fram allt
leita álits og aðstoðar fagmanna.
d. Núningstenging (losanleg tenging).
Ef ræsiviðnámið er meira en svo, að það
verði hæglega yfirunnið, eða ef margar
vinnuvélar eru knúðar af sama hreyfli
með sameiginlegu drifkerfi, er þessi tengi-
aðferð notuð. Þar sem slík tenging er fyrir
hendi, er hreyfillinn losaður úr tengslum
við vinnuvélina eða drifkerfið, áður en
hann er ræstur, og ekki tengdur við á ný,
fyrr en hann hefur náð fullum snúnings-
hraða. Ýmsar gerðir eru til af núnings-
tengslum, svo sem: harðviðarbakkatengsl,
tvíkeilutengsl, keðjutengsl, plötutengsl,
vökvatengsl, rafsegultengsl o. fl. Hinar
tvær síðasttöldu tegundir eru mjög dýrar
og ekki notaðar nema í sérstökum tilfell-
um. Hvaða tegund er valin 1 hverju ein-
stöku tilfelli, er undir aðstæðum komið,
svo sem stærð og snúningshraða vélanna.
Öll núningstengsl eru þannig úr garði
gerð, að með þeim er hægt að tengja afl-
vélina við vinnuvél eða drifkerfi svo og
taka hana úr tengslum, þótt hún gangi með
fullum snúningshraða.
2. Aflyfirfærsla með tannhjólum. Tann-
hjól eru notuð til þess að breyta snúnings-
hraða og snúningsstefnu. Þau eru einnig
notuð, þar sem húsrými er takmarkað og
þar af leiðandi örðugt að koma fyrir reim-
drætti.
Ef tannhjól eiga að ganga vel og hávaða-
lítið, verða þau að vera unnin af sérstakri
nákvæmni. Vel unnin tannhjól eru sérstak-
lega örugg í rekstri og afltapið við notkun
þeirra nálægt 3%.
Ýmsar gerðir eru til að tannafyrirkomu-
lagi og tannalögun, og fer það eftir kröf-
um þeim, sem á að gera til hjólsins. Hjól
með skásettum tönnum gefa minna afltap
og eru hljóðlátari en hjól með beinum
tönnum.
Ekki er hægt að gefa neinar fastar regl-
ur til að fara eftir við val tannhjóla. Verð-
T Æ K N I
5