Tækni - 01.06.1943, Page 12

Tækni - 01.06.1943, Page 12
Tvöföld drifkeðja. (Renold). ur því öruggast að leita álits sérfræðings í hverju einstöku tilfelli. Tannhjól eru mjög dýr, ef þau eru ná- kvæmlega unnin, og þess vegna minna not- uð en ella mundi. Hefur keðjudrif mjög rutt þeim úr vegi á síðari árum. 3. Aflyfirfærsla með keðjum. Notkun á keðjum til aflyfirfærslu hefur mjög auk- izt nú seinustu ár. Eru þær mjög hentugar til aflyfirfærslu, og virðist hægt að koma þeim við, þar sem annars mundi notað reimdrif eða tannhjól. Þær eru ódýrari en tannhjól. Sé rétt frá keðjunum gengið, má heita, að þær gangi hljóðlaust, og öryggi þeirra í rekstri er mjög mikið. Afltapið við notkun þeirra er að meðaltali nálægt 1,5%. Keðjur má nota svo að segja við hvaða hraða og afl, sem vera skal. Flestar keðjusmiðjur gefa út töflur, sem hægt er að hafa til leiðbeiningar við val á keðju. I veigameiri tilfellum er þó rétt að leita álits fagmanna. Sérstaklega er heppilegt að nota keðjur, þar sem mikill raki eða hiti er, svo að heita má, að útilokað sé að nota reimar. Keðjur hafa einnig þann kost, að láta má eina og sömu keðju knýja marga ása, ef lega þeirra er þannig innbyrðis. 4. Aflyfirfærsla með reimum. Reimar hafa verið algengasta tækið til aflyfir- færslu allt fram á þennan dag. Þær eru ódýrar og mega teljast öruggar í rekstri. Keðjudrif. Sama keðja gengur á þrem hjólum og einu strekkhjóli, sem er í miðju t. v. (Renold). 6 T Æ K N I

x

Tækni

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tækni
https://timarit.is/publication/1886

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.