Tækni


Tækni - 01.06.1943, Qupperneq 13

Tækni - 01.06.1943, Qupperneq 13
í reimar eru ýmis efni notuð, og fer það eftir staðháttum, hvaða efni er valið í hverju einstöku tilfelli. Endingarbeztar eru leðurreimar og mest notaðar fyrir þungan drátt. Ef um mikinn raka eða hita er að ræða, er erfitt að koma notkun reima við, og þá þurfa þær að vera úr efni, sem sérstaklega er gert til að standast slíkt. í raka eru gúmmíreimar beztar. í þeim til- fellum verður þó venjulega heppilegra að nota keðjur, eins og áður er sagt. Þegar reimdrif er valið, ber sérstaklega að athuga skilyrði þau, sem fyrir hendi eru, svo sem ásafjarlægð og hraðahlutfall. Ef reim á að vera liggjandi eða hallandi, skal gæta þess, að dragandi hlutinn viti ávallt niður. Reimin skal lögð á með ákveð- inni spennu (svarandi til ummálshraðans), til þess að skriðtapið verði sem minnst. a. Opið reimdrif ætti helzt að velja, ef mögulegt er að koma því við. Sé hraða- hlutfallið rétt valið og vandað til vals á reiminni, fæst góð ending og ákjósanlegt rekstraröryggi. Eftir því sem aðstæður eru betri, má reimhraðinn vera meiri, þó ætti hraðinn aldrei að fara fram úr 40 m/sek. Þegar hraðinn er kominn yfir 35 m/sek., skal sérstaklega taka tillit til þess við val á reim. Við opinn reimdrátt má hraðahlutfallið ekki fara fram úr 1: 5. Ef hlutfallið verð- ur stærra, vex skriðtapið mjög ört vegna þess, hve lítinn áleggsflöt reimin hefur á minna reimhjólinu. Venjulegt afltap við opinn reimdrátt er nálægt 3%. Þegar ásafjarlægð er valin, má nota eftirfarandi reglu, þar sem „A“ táknar minnstu ásafjarlægð: 3 D Amiii = (D -f- d) -j- -g • Reimdrif með strekkihjóli. Strekkihjólið með fjaðurfargi. T Æ K N I 7

x

Tækni

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tækni
https://timarit.is/publication/1886

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.