Tækni - 01.06.1943, Page 19
statoi’vöfunum. Til að halda kraftlínu-
straumnum við þarf spennuna U, sem er
jafnhá, en fer í öfuga átt og E,, þegar
ekki er tekið tillit til verkana dreifisviðs-
ins (statorspredningsfeltet), sem veldur
því, að U getur orðið 3 til 5% hærri en E,.
Enn fremur er undanskilið ohmska spennu-
tapið í statorvöfunum, sem hefur minni
áhrif. Kraftlínustraumurinn myndar einn-
ig í snúðnum rafkraftinn Eo, sem hefur
sömu tíðni og slipporkan.
inu straum, sem er svo mikill, að mótraf-
kraftur þessa straums verði nákvæmlega
í jafnvægi við mótrafkraft snúðstraums-
ins bæði með tilliti til stærðar og fasa-
stöðu, þannig að kraftlínustraumurinn
myndist aðeins af Im, Sá statorstraumur,
Ii, sem þarf frá orkukerfinu til að vega
upp á móti verkunum snúðstraumsins I2,
er jafnstór og öfugur við I2. En hinn sam-
anlagði straumur frá orkukerfinu er því,
að I, og I>n samanlögðum, sýndur á 2.
mynd sem I. Af þessu sést, að straumur-
inn kemur á eftir spennunni, sem stafar
af því, ao segulmögnunarstraumurinn Ira
er 90° á eftir spennunni U.
Þegar bæta á fasviksstuðulinn, er um
tvær leiðir að velja. Annaðhvort er hægt
að tengja eitthvað við statorrásina, sem
tekur straum, sem er framan við U og veg-
ar þar með upp hinn wattlausa ,,komposant“
straumsins I, eða þá að tengja eitthvað í
snúðrásina, sem verkar þannig, að straum-
urinn verði á undan spennunni. Þá mun
straumurinn I einnig verða á undan spenn-
unni, og þannig mun vegið upp á móti
áhrifum I„r.
Þessi rafkraftur myndar snúðstraum-
inn I2 í snúðvöfunum. Stærð þessa straums
er undir viðnámi og launviðnámi (reak-
tans) snúðsins komin:
Hér er X2S launviðnámið í snúðvafinu.
Þegar snúðurinn hefur slippið s vegna
þessa launviðnáms, mun snúðstraumurinn
koma horninu <p2 eftir E2. Straumurinn
I2 mun reyna að mynda kraftlínustraum í
loftbilinu alveg eins og straumurinn Im,
en þar sem Im er ákveðinn af spennunni
U, verður að koma í veg fyrir þessa tilraun
I2 til að mynda kraftlínustraum. Það
verður þess vegna að draga frá orkukerf-
a. Þéttar.
Þegar þéttar eru tengdir þvert yfir
3. mt/nd
T Æ K N T
13