Tækni - 01.06.1943, Side 21

Tækni - 01.06.1943, Side 21
spennu E, sem þrýstir honum, og í öfugu hlutfalli við tíðnina f,, eða = k Þegar hraði snúðsins minnkar, vex raf- krafturinn við snertihringina, en sam- tímis vex tíðnin, svo að kraftlínustraum- urinn verður stöðugur. Rafkrafturinn, sem framleiðist af fasastillinum og fer inn í snúðrásina, er því stöðugur og hef- ur engin áhrif frá slippinu og þar með heldur engin áhrif af álagi aðalhreyfils- ins. Verkanir á fasahornvikið eru því þær sömu við öll álög og eru því ekki, eins og við raðarsegulmögnun, komnar undir álag- inu. Þessi aðferð var fundin af Þjóðverj- anum Scherbius og kallast þess vegna Scherbius fasastillir. En þetta nafn er einnig oft notað um hinn einfalda Le Blanc’s fasastilli. I staðinn fyrir að nota statorvöfin til myndunar segulsviðsins er hægt að hafa snúðinn með 3 snertihringjum og nota þannig straum frá sama orkukerfi og aðal- hreyfillinn, eins og sýnt er á 6. mynd. Straumar þeir, er fara inn í snúðinn gegn- um snertihringina, mynda hverfisvið, sem snýst með samfasa hraða í hlutfalli við snúðvöfin. Tíðni rafkraftsins, sem fram kemur við straumvendisburstana, fer eft- ir hraða sviðsins. Snúðurinn verkar því sem tíðnibreytir. Ef snúðurinn hreyfðist ekki, mundi tíðnin við burstana vera jöfn og tíðni orkukerfisins, en ef snúðurinn snérist með samfasa hraða í öfuga átt og snúningssviðið, mundi sviðið vera kyrrt, og tíðnin við burstana mundi þá vera núll (rakstraumur). c. ,,Kompenseraðir“ spanhreyflar. I áður nefndum aðferðum til endurbóta á fasviksstuðli hefur verið notuð hjálpar- vél á sama ás og snúður aðalvélarinnar. Þetta eykur auðvitað stofnkostnað, auk þess er þessi aðferð dýr í rekstri, þegar um litlar vélar er að ræða. Það hafa því verið gerðar margar tilraunir með að koma fasastillinum svo fyrir, að hann yrði hluti af sjálfum aðalhreyflinum. Byggðar hafa verið margs konar gerðir af slíkum vélum, og eru þær allar nefndar einu nafni ,,kompenseraðir“ hreyflar, enda þótt þeir séu mjög ólíkir. Torcla-hreyfillinn er sameining af span- hreyfli og einföldum fasastilli án stator- vafa. Rakstraumsvöfunum er komið fyrir í nótum undir aðalvöfum snúðsins. Snerti- hringir snúðsins eru tengdir við straum- vendi, með þremur burstum, eins og á hinum einfalda Le Blanc’s fasastilli. Stærð rafkraftsins, sem spanast í aðalvöfunum, er undir snúðstraumnum komin, svo að endurbætur fasviksstuðulsins eru mjög litlar við lítið álag, þrátt fyrir, að cos<p= 1 við fullt álag. T Æ K N I 15

x

Tækni

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tækni
https://timarit.is/publication/1886

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.