Tækni - 01.06.1943, Page 26

Tækni - 01.06.1943, Page 26
falls-túrbínur eru fremur óhentugar. Francis-túrbínur hafa of háan eðlis- (eða tegundar-)hraða, en pelton-hjól of lágan hraða. Til þess að geta notað pelton-hjól þrátt fyrir það, er oft gripið til þess ráðs að nota pelton-hjól með mörgum túðum. Er þá að vísu hægt að ná nægilega miklum snúningshraða, en túrbínan verður marg- brotin og dýr. Túrbínan, sem hér er um að ræða, hefur þann kost pelton-hjólsins, að hún er einföld að gerð, en auk þess hefur hún meiri eðlishraða en pelton-hjólið og brúar því það hraðabil, sem er á milli pelton-túrbína með einni túðu og hrað- gengra francis-túrbína. Eins og pelton- hjólið er „turgo impulse“-túrbínan gerð fyrir frítt frárennsli (án sogpípu), en aðal- munurinn er fólginn í því, að í pelton-hjól- inu kemur vatnsbunan rétt (tangential) á hjólhringinn, og vatnið rennur burtu af hjólinu radialt. I „turgo impulse“-túrbínu kemur bunan úr túðunni, undir ákveðnum vinkli, á hlið skófluhjólsins, rennur í gegn- um það langsum og í burtu við hina hlið þess. Meðfylgjandi mynd sýnir aðalmuninn á milli venjul. pelton-hjóls og „turgo im- pulse“-túrbínu. Hraði túrbínu Garðsárvirkjunar er stillt- ur með miðflóttaaflstilli, sem er festur beint á ás hennar. Auk þess hefur túrbínan sérstakan stilli eða vatnsnýti, er verkar á túrbínunál, eins og algengt er á pelton-túrbínum. Stillingin vinnur í aðalatriðum þannig: Ef vélarnar ganga með fullu álagi, en því er skyndilega kippt af, t. d. ef mesta- straumsrofinn rífur rafmagnsstrauminn, eykst hraði vélanna skyndilega, og viktir miðflóttaaflsstillisins kastast út á við. Stillirinn er tengdur við hreyfanlegt spjald, sem er rétt framan við túðuna. Það ýtist inn í bununa og beygir hana til hliðar, svo að aðeins mátulegur hluti verk- oamanbui'ður á pelton-túrbínu og' „turgo impulse“- túrbínu. Pelton-túrb.na að ofan. „Turg'o imiiulse“- túrbína að neðan. ar á hjólið til að halda fullum hraða vél- anna við það álag, sem þær þá hafa. Hreyf- ingar þessar eru afar hraðar, því að full hreyfing spjaldsins fyrir alla bununa tek- ur ekki nema um V20 hluta úr sekúndu. Ef ekki þyrfti að spara vatn, nægði þessi stilliaðferð, en þar sem um vatns- miðlun er að ræða, væri hún að sjálfsögðu alltof eyðslufrek á vatn. Því er hér notaður vatnsnýtirinn, sem áður er nefndur. Hann er tengdur við mið- flóttaaflstillinn þannig, að hann opnar vatnsloka, svo að vatn streymir í gegnum völundarhús (labyrinth) inn á stimpil, sem verkar á nál túrbínunnar og ýtir henni inn í túðuna, hægt og hægt, til að forðast þrýstingsauka í túrbínupípunni, en spjaldið hreyfist um leið út úr bununni. Ef álag eykst á vélarnar, eru hreyfing- ar stillis og vatnsnýtis tilsvarandi því, sem að ofan var lýst, en öfugar. Túrbína þessi mun vera hin fyrsta þess- arar tegundar hér á landi. í legum túrbínu og rafals eru hitaleið- ar, er verka á túrbínustillinguna þannig, 20 TÆKN I

x

Tækni

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tækni
https://timarit.is/publication/1886

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.