Tækni - 01.06.1943, Blaðsíða 34
lægt 1,50 kr. pr. kg. Sparast því sem næst
helmingur smurningskostnaðarins að
ógleymdu því, sem vinnst með spöruðum
gjaldeyri og spöruðu skiprúmi vegna
minni olíuinnflutnings.
Olíuhreinsunarstöð sú, sem fyrr getur,
er ekki enn orðin svo fullkomin sem eig-
endur hennar vonast til að geta gert hana,
þegar leiðir opnast. Þó getur hún nú þeg-
ar tekið til hreinsunar allar algengar olíu-
tegundir og gert þær sem nýjar. Alla olíu,
sem stöðin hreinsar, lætur hún rannsaka
hjá Rannsóknarstofu ríkisins að aflok-
inni hreinsun, og fylgir vottorð Rannsókn-
arstofunnar, þegar hin hreinsaða olía er
afhent eigendum.
Rannsóknir hafa leitt í ljós, að olían er
ekki lakari eftir hreinsunina en hún var
' / Þ. R.
Félagið
TÆKNI, félag manna, sem stunda verk-
fræðistörf, var stofnað í Reykjavík þann
4. nóvember 1942. Stofnendur voru þessir
15 menn:
Aðalsteinn Jóhannsson.
Ásgeir Sigurðsson.
Axel Kristjánsson.
Benedikt Bergmann, M. af I.
Friðgeir Grímsson, meðlimur I.M.I.
Gunnar Bjarnason, meðlimur I.M.I.
Iíöskuldur Baldvinsson.
Ingólfur Jörundsson.
Jón Gauti, meðlimur I.M.I.
Ólafur Einarsson.
Páll Helgason.
Sigurður Flygenring, M. af I.
Steinar E. Ólafsson.
Sveinn Guðmundsson.
Þórður Runólfsson, meðlimur I.M.I.
TÆKNI
Útgefandi: Tækni,
félag manna, sem stunda verkfræðistörf.
Ritnefnd:
Axel Kristjánsson, ábyrgðarmaður.
Benedikt Berg'mann.
Friðg’eir Grímsson.
Auglýsing'ast j óri:
Aðalsteinn Jóhannsson. ’ Sími 5616.
Afgreiðsla blaðsins er í Austurstræti 12,
3. hæð. Pósthólf 386.
M. af I. = Medlem af Ingeniör-Sammen-
slutningen, í Danmörku.
I.M.I. = Internationaler Mittveita-Inge-
nieurverein.
STJÓRN FÉLAGSINS
Fyrstu stjórn félagsins skipa:
Þórður Runólfsson, meðlimur I.M.I.,
formaður.
Sigurður Flygenring, M. af I., gjaldkeri.
Höskuldur Baldvinsson, ritari.
Benedikt Bergmann, M. af I. ,varamaður.
★
I næsta hefti tímaritsins hefst saga
síldarverksmiðjanna með skýringum um
tækniþróun þeirra eftir Þórð Runólfsson,
verksmið j uskoðunarstj óra.
24
TÆKNI