Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 16.11.1984, Blaðsíða 8
Gunnar Eyjólfsson og Helgi Skúli Kjartansson fluttu sam-
talsþátt um baráttumál flokksins og það sem áunnist hefur.
Fundarmenn sungu „ísland ögrum skorið“.
Kjartan Jóhannsson formaður Alþýðuflokksins setti þing-
ið með ræðu sem hér fer á eftir:
Góðir þingfulltrúar, ágætu gestir.
Velkomin til flokksþings. Á þessu þingi munum við, auk
þess að kjósa flokknum stjórn, líta yfir liðna tið frá seinasta
flokksþingi, en ekki síður horfa fram á veginn. Fyrir þinginu
liggja mörg þingskjöl, byggð á ítarlegri vinnu. Á grundvelli
þeirra munum við marka afstöðu okkar og taka ákvarðanir.
Lítum fyrst yfir hið liðna. Því er ekki að leyna að ýmis áföll
hefur borið upp á og það hefur reynt á þolgæði okkar og
þrautseigju. Allt verður ekki rakið en ég vil nefna fáeina
þætti.
I fyrsta lagi klofnaði flokkurinn. Einn af okkar mikilhæf-
ustu og litríkustu þingmönnum, Vilmundur Gylfason, tók þá
ákvörðun að segja skilið við flokkinn og stofna nýjan flokk,
Bandalag jafnaðarmanna. Þetta var vissulega mikið áfall.
Við þessar aðstæður var kosningabaráttan háð. Það var
upp í móti að sækja allan tímann. Skoðanakannanir og kosn-
ingaspár bentu til óvægilegs fylgistaps Alþýðuflokksins, en
með öflugu og samstilltu átaki tókst þó að gera hlut flokksins
nokkru betri en spár og kannanir bentu til.
Engu að siður var fylgistap okkar verulegt. Ósigurinn varð
okkur annað áfall.
Landregnar stjórnarmyndunarviðræður tóku við. í ljós
kom að eini stjórnarmyndunarkosturinn, þar sem Alþýðu-
flokkurinn kom til álita, var í samstjórn með núverandi
stjórnarflokkum. Allar aðrar hugmyndir um ríkisstjórnar-
samstarf, þar sem Alþýðuflokkurinn kom við sögu, mættu
áhugaleysi af hálfu annarra. Það kom síðar í ljós að þeir
flokkar sem nú mynda ríkisstjórn vildu ekki taka tillit til
sjónarmiða Alþýðuflokksins. Öllum kröfum okkar um kerf-
6