Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 16.11.1984, Blaðsíða 76
.Þjóðfélagið er á tímamótum.
Alþýðuflokkurinn er á tímamótum.
Þær ákvarðanir, sem þið takið hér, munu mjög sennilega
skiptasköpum um stjórnmálaþróun á íslandi fram að næstu
aldamótum.
Hvorki meira né minna.
Ég treysti dómgreind ykkar; ég treysti á ábyrgðartilfinn-
ingu ykkar, gagnvart þeim hinum dýra arfi forfeðra og braut-
ryðjenda, sem ykkur hefur verið falið að ávaxta;
Ég treysti á ábyrgðartilfinningu ykkar, gagnvart framtíð ís-
lenzka lýðveldisins, lífskjörum og hamingju niðja okkar, bor-
inna og óborinna.
Þessa ögurstund sitjið þið í dómarasæti; í höndum ykkar
er fjöregg Alþýðuflokksins og jafnaðarstefnunnar; ekkert
ykkar fær undan því vikist að kveða upp sinn dóm. Ekkert
ykkar fær að sitja hjá; og enginn dauðlegur maður er yfir það
hafinn, að hlíta ykkar dómi.
Alþýðuflokkurinn er á timamótum.
Þjóðfélagið er á tímamótum. Á næstu misserum og árum
göngum við á vit sjaldgæfra umbrotatíma í íslenzkum stjórn-
málum.
Það eru þúsundir íslendinga, karla og kvenna, ungra og
aldinna, sem nú eru knúin til að leita nýrra svara við gömlum
spurningum; um rétt og rangt, um gott og illt.
Og minnumst þess: það er ekki ranglæti hinna illviljuðu,
sem er verst; heldur afskiptaleysi og þögn — hinna góðvilj-
uðu.
Það er vel fylgzt með þessu flokksþingi. Það er gott. Öll
þjóðin beinir augum sínum hingað þessa helgi. Öll þjóðin
leggur við hlustir og vill heyra hvað hér er sagt. Það er gott.
Þannig á það að vera. Ekki bara í þetta skiptið heldur ævin-
lega.
Minnumst brautryðjendanna, sem lögðu blóð sitt, svita og
tár fram í fórnfúsri baráttu til að breyta þessu þjóðfélagi í
anda frelsis, jafnréttis og bræðralags.
74