Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 16.11.1984, Page 44
Magnús H. Magnússon: Aths. við skattamál.
Helgi Hauksson: Aths. varðandi tölvukennslu sem má ekki
verða karlastarf.
Vakti athygli á erfiðleikum ungs fólks við að koma sér upp
heimili. Hvatti sérstaklega til athugunar og endurbóta vegna
stöðu ungs barnafólks.
Eftir kvöldverðarhlé voru teknar fyrir till. nefndar um
efnahags- og atvinnumál, ásamt launa- og kjaramálum.
Fyrsti framsm. var Árni Gunnarsson. Hann óskaði eftir að
fram yrði lögð tillaga úr Norðurl. e., um skuldaskilamál
heimilanna. Með tillögunum um atvinnumál var tillaga að at-
vinnustefnu til aldamóta, sem búið var að fara mjög gaum-
gæfilega yfir áður en hún var lögð fram.
Auk þess voru tillögur frá SUJ sem nefndin hafði ekki ver-
ið samþykk, þá var tillaga um þankamál frá Elíasi Kristjáns-
syni og Birni Friðfinnssyni.
Ásgeir Jóhannesson var annar framsögumaður nefndar-
innar og mælti hann fyrir stefnuyfirlýsingu til jafnaðar
eigna- og tekjuskiptingu. Gerði Ásgeir grein fyrir smávægi-
legum breytingum sem nefndin Ieggur til og mælti með að
samþykkja sem viðauka við stjórnmálayfirlýsingu.
Þriðji framsögum. nefndarinnar var Karl Steinar Guðna-
son, sem hafði framsögu um launa- og kjaramál og lagði
fram tillögu að ályktun um launa- og kjaramál. Hann fjallaði
í framsögu auk þess um gang og þróun kjaramála síðustu vik-
urnar og stöðu launþegahreyfinga sem sterkur jafnaðar-
mannaflokkur gæti einn styrkt.
Sverrir Jóhannsson hafði borið fram brtill. við till. að
stjórnmálaályktun, en ekki komið henni fram.
Eiður Guðnason kvað stjórnmálanefnd hafa álitið tillögu
um skuldaskilasjóð heimilanna vera lagða fram með drögum
að stjórnmálaályktun, nefndinni til upplýsingar. Nefndin
hafði hjálögð gögn til hliðsjónar við vinnu sína.
Árni Gunnarsson vakti athygli á að hér væri um að ræða
42