Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 11.12.2023, Qupperneq 2

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 11.12.2023, Qupperneq 2
2 Framkvæmdafréttir nr. 728 6. tbl. 31. árg. Fjöldi manns kom saman við höfnina í Stykkishólmi til vera við athöfnina og ekki var annað að merkja en að mikil ánægja væri með nýjan Baldur. Athöfnin hófst á því að Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri Vegagerðarinnar, flutti ávarp þar sem hún sagði mikið gleðiefni að taka formlega á móti nýrri Breiðafjarðarferju, enda muni ferjan auka til muna öryggi farþega á siglingarleiðinni milli Stykkishólms, Flateyjar og Brjánslækjar. Nýjum Baldri fagnað í Stykkishólmi Tekið var formlega á móti nýrri Breiðafjarðarferju við hátíðlega athöfn í Stykkishólmshöfn föstudaginn 17. nóvember. Fjöldi fólks lagði leið sína niður á höfn til að skoða ferjuna, sem var opin fyrir gesti og gangandi. Íbúum norðan megin við Breiðafjörð gafst einnig kostur á að skoða Baldur í Brjánslæk sunnudaginn 19. nóvember. „Eldri ferjan, sem gegnt hafði ferjusiglingum undanfarin ár, þótti ekki standast öryggiskröfur sem gerðar eru í dag, enda aðeins með eina aðalvél. Strax árið 2021 var farið að skoða hvort hægt væri að finna annað skip sem uppfyllti þær kröfur sem settar eru fyrir ferjusiglingar á Breiðafirði. Við vorum einstaklega heppin að ferjan Röst stóð okkur til boða. Ferjuna þekktum við af góðu einu enda hafði hún verið notuð sem afleysingaskip fyrir Herjólf nokkrum árum áður,“ sagði Bergþóra og minntist sérstaklega á að það hafi heldur betur reynt á skipið á leiðinni frá Noregi til Íslands í október síðastliðnum, vegna veðurhams og mikils öldugangs. „Mér skilst á skipstjórnarmönnum að skipið hafi staðið sig með stakri prýði og sé afar gott sjóskip. Vel fari um farþega á siglingu og öll aðstaða fyrir þá er til mikilla bóta,“ sagði hún. ↑ Baldur í heimahöfn.

x

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar
https://timarit.is/publication/1142

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.