Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 11.12.2023, Qupperneq 3

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 11.12.2023, Qupperneq 3
Framkvæmdafréttir nr. 728 6. tbl. 31. árg. 3 Baldur í heila öld Ferjan Röst fékk nýtt nafn, Baldur, fljótlega eftir komuna til Íslands, enda á saga nafnsins sér langa sögu og hefur Baldur, í einhverju formi, siglt um Breiðafjörð í heila öld. „Það var okkur ljúft og skylt að verða við óskum íbúa við Breiðarfjörð og nefna nýju ferjuna Baldur,“ sagði Bergþóra. Að loknu ávarpi forstjóra var klippt á borða við hátíðlega athöfn. Auk forstjóra Vegagerðarinnar klipptu þau Jakob Björgvin Jakobsson, bæjarstjóri í Stykkishólmi, Þórdís Sif Sigurðardóttur, bæjarstjóri Vesturbyggðar, Stefán Vagn Stefánsson, fyrsti þingmaður Norðvesturkjördæmisins og Jóhanna Ósk Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri Sæferða á borðann. Ferjusiglingar um Breiðafjörðinn mikilvægar Eftir borðaklippinguna var haldið í farþegarýmið, þar sem þau Jakob Björgvin, Þórdís Sif, Stefán Vagn og Jóhanna Ósk söguð nokkur orð. Í máli Jakobs Björgvins kom fram að það væri hátíðisdagur að taka nýjan Baldur í notkun um þá þjóðleið sem Breiðafjörðurinn er en á næsta ári verða 100 ár frá því að Breiðafjarðarferjan Baldur hóf fyrst siglingar um fjörðinn. Hann sagðist fagna þessum áfanga en vonaðist til að næsti áfangi í að tryggja framtíðarlausn í ferjusiglingum um Breiðafjörð yrði að smíða nýtt skip fyrir þessa leið þar sem tekið væri tillit til orkuskipta framtíðarinnar. Þórdís Sif tók í sama streng og talaði um mikilvægi þess að hafa möguleika á ferjusiglingum um Breiðafjörð, ekki síst vegna atvinnulífs á svæðinu. Auk þess væri sigling um Breiðafjörðinn mikil upplifun. Stefán Vagn fór sérstaklega yfir mikilvægi þess að hafa traustar samgöngur um landið allt, samfélagi og atvinnulífi til heilla. Jóhanna Ósk fór yfir sögu Sæferða og minntist á að skipstjórar Baldurs hefðu báðir hafið sinn ferli sem aðstoðarmenn í eldhúsinu í Baldri sínum tíma en síðar menntað sig til stýrimanns og væru nú orðnir skipstjórar á þessu góða skipi. „Gamli Baldur er farinn í siglingar um suðrænni slóðir en ef leiðin liggur í karabíska hafið er aldrei að vita nema þið rekist á gamlan vin,“ sagði hún og þakkaði Vegagerðinni fyrir gott samstarf. Lions-klúbburinn Harpa í Stykkishólmi sá um dýrindis veitingar við athöfnina. Íbúar norðan megin Breiðafjarðar fengu einnig tækifæri til að skoða skipið í Brjálslæk sunnudaginn 19. nóvember. Um fjörutíu manns mættu á staðinn og þáðu kaffiveitingar um borð í Baldri. ↑ Klippt á borða til að fagna komu Baldurs. Frá vinstri: Jakob Björgvin Jakobsson, bæjarstjóri í Stykkishólmi, Jóhanna Ósk Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri Sæferða, Þórdís Sif Sigurðardóttir, bæjarstjóri Vesturbyggðar, Stefán Vagn Stefánsson, fyrsti þingmaður Norðvesturkjördæmisins og Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri Vegagerðarinnar. ↗ Boðið var til kaffisamsætis um borð í Baldri. ↓ Á þriðja hundrað manns heimsótti Baldur þennan dag og þáði kaffiveitingar um borð í skipinu.

x

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar
https://timarit.is/publication/1142

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.