Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 11.12.2023, Side 6
6 Framkvæmdafréttir nr. 728
6. tbl. 31. árg.
„Verkið hefur tekið aðeins lengri tíma en við ætluðum
þar sem steypuvinna var mun meiri og erfiðari en
reiknað var með,“ segir Sigurjón Karlsson, yfirverkstjóri
brúarvinnuflokksins. Verkið hófst í júní en lokið var við
múrvinnu í september. „Við gerðum við steypuskemmdir
í bríkum, gerðum við steypu í gangbrautum sem liggja
meðfram akbrautum brúarinnar, gerðum við skemmdir
í landstöplum og steyptum upp hliðarvegg að austan
undan straum.“
Eftir að steypuviðgerðum lauk hefur verið unnið að
uppsetningu göngubrúarinnar. Verkið snýst um að
bora göt í bríkur og steypta bita svo hægt sé að
festa við svokölluð stálknekti sem halda uppi nýja
brúargólfinu. „Stálknektin koma tilbúin en við höfum
smíðað gólfeiningarnar sjálfir og híft þau á knektin. Við
þurftum að festa gólfið neðan frá og gerðum það með
körfubíl.“ Sigurjón segir verklok aðeins óljós þar sem
bið verður á að fá stálið í handriðin.
Byggja göngubrú yfir
Ytri-Rangá við Hellu
Brúarvinnuflokkur Vegagerðarinnar vinnur að
gerð göngu- og hjólabrúar yfir Ytri-Rangá við
Hellu. Göngubrúin verður fest utan á núverandi
brú sem byggð var árið 1960. Öryggi gangandi
og hjólandi eykst til muna en auk þess er
göngubrúnni ætlað að tengja þorpið við nýtt
hverfi sem á að rísa vestan megin við ána.
Umferð stýrt með ljósum
Mikil umferð er um brúna. Árið 2022 var árdagsumferð
um 4700 bílar (meðalumferð á dag yfir árið) og hefur
aukist umtalsvert á síðustu tveimur árum en árið 2020
var umferðin um 3400 bílar á dag.
Sigurjón segir vinnuna hafa gengið ótrúlega vel þrátt
fyrir nálægð við þessa miklu umferð. „Fólk er ótrúlega
tillitssamt þegar það ekur fram hjá okkur.“
Nauðsynlegt hefur verið að loka annarri akreininni á
brúnni frá mánudagsmorgni til fimmtudagskvölds þann
tíma sem brúarvinnuflokkurinn hefur verið að störfum.
Umferðinni er stjórnað með ljósum. „Þetta hefur gengið
mjög vel þó fólk verði sumt skiljanlega dálítið pirrað. En
við tökum niður lokunina á fimmtudagskvöldum og því
hefur brúin verið opin alla föstudaga, laugardaga og
sunnudaga þegar umferðin er hvað mest.“
→
Brúarvinnuflokkur Vegagerðarinnar
frá Vík sér um uppsetningu.
↓
Framkvæmdir eru hafnar við göngu-
og hjólastíga sem liggja að og frá
nýju göngubrúnni. Sveitarfélagið sér
um framkvæmdir.
Teikning: EFLA