Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 11.12.2023, Page 6

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 11.12.2023, Page 6
6 Framkvæmdafréttir nr. 728 6. tbl. 31. árg. „Verkið hefur tekið aðeins lengri tíma en við ætluðum þar sem steypuvinna var mun meiri og erfiðari en reiknað var með,“ segir Sigurjón Karlsson, yfirverkstjóri brúarvinnuflokksins. Verkið hófst í júní en lokið var við múrvinnu í september. „Við gerðum við steypuskemmdir í bríkum, gerðum við steypu í gangbrautum sem liggja meðfram akbrautum brúarinnar, gerðum við skemmdir í landstöplum og steyptum upp hliðarvegg að austan undan straum.“ Eftir að steypuviðgerðum lauk hefur verið unnið að uppsetningu göngubrúarinnar. Verkið snýst um að bora göt í bríkur og steypta bita svo hægt sé að festa við svokölluð stálknekti sem halda uppi nýja brúargólfinu. „Stálknektin koma tilbúin en við höfum smíðað gólfeiningarnar sjálfir og híft þau á knektin. Við þurftum að festa gólfið neðan frá og gerðum það með körfubíl.“ Sigurjón segir verklok aðeins óljós þar sem bið verður á að fá stálið í handriðin. Byggja göngubrú yfir Ytri-Rangá við Hellu Brúarvinnuflokkur Vegagerðarinnar vinnur að gerð göngu- og hjólabrúar yfir Ytri-Rangá við Hellu. Göngubrúin verður fest utan á núverandi brú sem byggð var árið 1960. Öryggi gangandi og hjólandi eykst til muna en auk þess er göngubrúnni ætlað að tengja þorpið við nýtt hverfi sem á að rísa vestan megin við ána. Umferð stýrt með ljósum Mikil umferð er um brúna. Árið 2022 var árdagsumferð um 4700 bílar (meðalumferð á dag yfir árið) og hefur aukist umtalsvert á síðustu tveimur árum en árið 2020 var umferðin um 3400 bílar á dag. Sigurjón segir vinnuna hafa gengið ótrúlega vel þrátt fyrir nálægð við þessa miklu umferð. „Fólk er ótrúlega tillitssamt þegar það ekur fram hjá okkur.“ Nauðsynlegt hefur verið að loka annarri akreininni á brúnni frá mánudagsmorgni til fimmtudagskvölds þann tíma sem brúarvinnuflokkurinn hefur verið að störfum. Umferðinni er stjórnað með ljósum. „Þetta hefur gengið mjög vel þó fólk verði sumt skiljanlega dálítið pirrað. En við tökum niður lokunina á fimmtudagskvöldum og því hefur brúin verið opin alla föstudaga, laugardaga og sunnudaga þegar umferðin er hvað mest.“ → Brúarvinnuflokkur Vegagerðarinnar frá Vík sér um uppsetningu. ↓ Framkvæmdir eru hafnar við göngu- og hjólastíga sem liggja að og frá nýju göngubrúnni. Sveitarfélagið sér um framkvæmdir. Teikning: EFLA

x

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar
https://timarit.is/publication/1142

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.