Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 11.12.2023, Blaðsíða 12
12 Framkvæmdafréttir nr. 728
6. tbl. 31. árg.
NordFoU er samstarfsvettvangur norrænna
samgönguyfirvalda sem hófst árið 2004. Tilgangur
samstarfsins er að hámarka auðlindanýtingu og skapa
samlegðaráhrif á ýmsum sviðum enda þurfa löndin oft
að eiga við sambærilegar áskoranir. Þau lönd sem eiga
aðild að samstarfinu eru Danmörk, Svíþjóð, Noregur,
Finnland og Ísland.
Núverandi samstarf byggir á rammasamningi um
samnorræn rannsóknarverkefni frá árinu 2004 og
samþykktum sem síðast voru endurskoðaðar árið 2018.
Stýrinefnd NordFoU lagði nýverið til breytingar á
skipulagi og fjármögnunarfyrirkomulagi NordFoU
með það að markmiði að einfalda stjórnsýslu. Nýr
samstarfssamningur var undirritaður af öllum
vegamálastjórum Norðurlanda á fundi þeirra í
Kaupmannahöfn í nóvember.
Skrifað undir samning um
rannsóknir á Norðurlöndum
Forstjórar vegagerða á Norðurlöndum skrifuðu
í nóvember undir nýjan samstarfssamning um
sameiginlegar rannsóknir undir hatti NordFoU.
Um starfsemi NordFou
NordFoU er samstarfsvettvangur vegagerða
Norðurlanda í rannsóknum. Þátttökulöndin eru
Finnland, Svíþjóð, Noregur, Danmörk, Ísland og
Færeyjar. Markmið NordFoU er að vinna sameiginlega
að ákveðnum rannsóknaverkefnum og fjármagna
þau sameiginlega úr sjóðum sínum. Fyrirkomulagið
NordFoU skapar samlegðaráhrif fyrir allar stofnanir og
aðstoðar við að:
→ Takast á við sameiginleg vandamál
→ Nýta takmarkaða fjármuni
→ Forðast endurtekningar á rannsóknum
→ Takast á við stærri rannsókna- og þróunarverkefni
→ Fá fleiri sjónarmið við skilgreiningu á rannsóknaþörf
→ Miðla niðurstöðum til stærra svæðis