Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 11.12.2023, Page 16
16 Framkvæmdafréttir nr. 728
6. tbl. 31. árg.
Darri Kristmundsson hjá Vatnaskilum hélt erindið
Vindaðstæður við brýr – hermun til stuðnings
hönnunarviðmiðum. Þar kom fram að óhagstæðar og
jafnvel hættulegar vindaðstæður geta skapast við býr,
m.a. vegna aukinnar hviðumyndunar vegna mannvirkis
eða árfarvegs. Helstu niðurstöður eru að hermun getur
verið öflugt verkfæri til að styðjast við þegar kemur að
staðarvali fyrir mannvirki út frá vindsviði.
Sólveig Kristín Sigurðardóttir hjá Verkís hélt erindið
Sigmælingar með LiDAR skanna á þyrildi. Skoðað
var hvort hægt er að nota LiDAR skanna á þyrildi í
sigmælingar á deigu undirlagi við vegagerð í stað
annarra mælinga og sem stuðning við aðrar mælingar.
Niðurstöður benda til að LiDAR til sigmælinga hafi
marga góða kosti, svo sem góða rúmupplausn, sýni
hvernig landið í heild bregst við fergingu og hægt er að
fylgjast með framgangi verka með slíkum mælingum.
Ólafur H. Wallevik frá Háskólanum í Reykjavík hélt
erindi um kosti hástyrkleikasteypu á brýr. Fram kom
meðal annars að með því að velja hástyrkleikasteypt
slitlag fæst löng ending slitlags sem lækkar
viðhaldskostnað, það dregur úr slysahættu og er
mikilvægur liður í 100 ára líftímahönnun.
Guðbjartur Jón Einarsson hjá Mannviti hélt erindið
Ástandsskoðun sprautusteypu í jarðgöngum með
tilliti til þykktar og væntanlegs líftíma. Tilgangur og
markmið var m.a. að skoða ástand og meta hrörnun
sprautusteypu í veggöngum og sannreyna hvort
eldri fyrirskriftir dugi eða hvort auka þurfi styrkingar.
Niðurstöður benda til að ekki virðist þörf á að auka
minnstu þykkt sprautusteypu og með eðlilegu viðhaldi
og minniháttar viðgerðum muni líftími þeirra jarðganga
sem voru skoðuð ná 50-100 árum.
Majid Eskafi hjá EFLU hélt erindið:
Kolefnisfótsporsgreining á brimvarnargörðum og
sjóvörnum. Þar var farið yfir rannsókn þar að lútandi á
höfninni í Þorlákshöfn og í Straumsvík og niðurstöður
kynntar.
Davíð Guðbergsson hjá VSÓ ráðgjöf hélt erindið
Áhrif á öryggi virkra ferðamáta vegna algrænna
umferðarljósa. Markmið rannsóknarinnar er að
leggja tölfræðilegt mat á áhrif algrænna göngufasa á
umferðaröryggi. Aukning í fjölda gangandi og hjólandi
gefur til kynna að fólk upplifi aukið öryggi.