Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 11.12.2023, Síða 20

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 11.12.2023, Síða 20
20 Framkvæmdafréttir nr. 728 6. tbl. 31. árg. Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri Vegagerðarinnar, sagði öllu máli skipta fyrir íbúa að fá nútímalegan láglendisveg. „Og við vitum að barnafólkið hér í sveitinni gleðst sérstaklega yfir þessum framkvæmdum því það sér nú fram á að þurfa ekki í framtíðinni að senda börn í skólabíl yfir viðsjárverða fjallvegi.“ Verkið: Vestfjarðavegur (60) um Gufudalssveit, Kinnarstaðir - Þórisstaðir. Nýja brúin yfir Þorskafjörð er 260 m löng, tvíbreið, staðsteypt, eftirspennt bitabrú í sex höfum. Auk hennar voru gerðar vegfyllingar á 2,7 km kafla. Verklok voru áætluð í lok júní 2024 og var framkvæmdin því langt á undan áætlun. Með nýrri brú leggst af um 10 km kafli á núverandi Vestfjarðavegi ásamt einbreiðri brú á Þorskafjarðará frá árinu 1981. Tilboð í verkið voru opnuð 16. febrúar 2021. Suðurverk bauð rúmar 2.236 m.kr. sem var 107,6 prósent af áætluðum verktakakostnaði. Skrifað var undir verksamning við Suðurverk 8. apríl 2021. Framkvæmdir hófust í október það sama ár. Tilboð í eftirlit með verkinu voru opnuð 19. október 2021. Samið var við Verkís verkfræðistofu. Verkefnastjórn var í höndum framkvæmdadeildar Vegagerðarinnar og umsjón framkvæmdar hjá Vestursvæði Vegagerðarinnar. Auk þessara aðila komu fjölmargir starfsmenn Vegagerðarinnar að ýmsum þáttum undirbúnings og einstökum hlutum verksins ásamt ráðgjöfum. ↓ Heiðursfólkið Stefán Rafn Kristjánsson og Hallrún Ásgrímsdóttir.

x

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar
https://timarit.is/publication/1142

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.