Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 11.12.2023, Side 21
Framkvæmdafréttir nr. 728
6. tbl. 31. árg.
21
Með aðalverktakanum Suðurverki störfuðu margir
undirverktakar við útboðsverkið: Eykt sá um
brúarsmíði, Steypustöðin sá um steypuframleiðslu,
Borgarverk sá um klæðingar á vegum og Nortek setti
upp vegrið.
Framkvæmdirnar eru hluti af stærra verkefni í
Gufudalssveit sem er vegagerð um Teigsskóg ásamt
þverunum á Djúpafirði og Gufufirði. Tengd verk sem
einnig er áætlað að ljúki á árinu 2023 eru:
→ Vestfjarðavegur (60) um Gufudalssveit, Þórisstaðir-
Hallsteinsnes (Teigsskógur)
→ Vestfjarðavegur (60) um Gufudalssveit,
Djúpadalsvegur (6087)
Við lok þessara framkvæmda þarf ekki lengur að aka
um Hjallaháls sem er í 336 metra hæð. Þegar öllum
framkvæmdum við Vestfjarðaveg í Gufudalssveit
verður lokið verður heildarstytting vegarins um 22 km,
það er, þegar lokið hefur verið við að þvera Gufufjörð
og Djúpafjörð. Aksturstími styttist um 30 mínútur.
Vonir standa til að þverun fjarðanna tveggja verði
boðin út á næsta ári.
↗
Jóhanna Ösp Einarsdóttir, varaoddviti
Reykhólahrepps ,og dætur hennar, Yrsa
og Ásborg, fóru fyrstar yfir brúna, ríðandi á
hestum.
→
Yrsa Dís Styrmisdóttir var skæravörður.
←
Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra,
Ingibjörg Birna Erlingsdóttir, sveitarstjóri
Reykhólahrepps og Bergþóra Þorkelsdóttir,
forstjóri Vegagerðarinnar, klipptu á
borða til að marka opnun brúarinnar yfir
Þorskafjörð..