Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 11.12.2023, Blaðsíða 23
Framkvæmdafréttir nr. 728
6. tbl. 31. árg.
23
Í verkinu fólst bygging tveggja akreina norðan við
núverandi veg með 11 m miðdeili, en það þýðir að 11
metrar eru milli akbrauta sem liggja í gagnstæðar
áttir. Ofanvatnsræsi voru lengd og byggð undirgöng
fyrir ríðandi umferð. Göngin eru um 50 m löng, 4,5 m
breið og um 4,0 m há. Þau eru bogalaga úr báruðum
galvanhúðuðum stálplötum sem eru boltaðar saman
í boga. Að reiðgöngunum var lagður nýr reiðstígur, um
380 m langur.
Vegtenging að Waldorfskóla var breytt í þessum
áfanga en tengingin var færð niður í Lækjarbotna.
Vegurinn að Waldorfskóla er 1,2 km að lengd og
klæddur bundnu slitlagi.
Ákveðið var að bæta við verkið 950 metra kafla frá
Lögbergsbrekku og að Gunnarshólma, gerð hliðfærðra
T-vegamóta og hliðarvegum.
Framkvæmdir við viðbótarkaflann hófust sumarið
2023. Útbúin verða tvö ný gatnamót á leiðinni til
að fækka tenginum inn á þjóðveginn, en við þessa
framkvæmd munu fimm tengingar sameinast í eina en
það var eitt af meginmarkmiðum framkvæmdarinnar,
að fækka tengingum, til að auka umferðaröryggi.
Einnig voru gatnamótin að Lækjarbotnum og þar með
Waldorfskóla færð vestar. Tengingin frá Hringvegi er
220 metrar.
Verklok eru áætluð sumarið 2024.
↑
Um þessar mundir er unnið að breikkun
Suðurlandsvegar frá Lögbergsbrekku að
Gunnarshólma, eða um 950 m leið.
→
Unnið að malbikun Suðurlandsvegar í fyrsta
áfanga verksins sem lauk sumarið 2023.