Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 11.12.2023, Qupperneq 23

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 11.12.2023, Qupperneq 23
Framkvæmdafréttir nr. 728 6. tbl. 31. árg. 23 Í verkinu fólst bygging tveggja akreina norðan við núverandi veg með 11 m miðdeili, en það þýðir að 11 metrar eru milli akbrauta sem liggja í gagnstæðar áttir. Ofanvatnsræsi voru lengd og byggð undirgöng fyrir ríðandi umferð. Göngin eru um 50 m löng, 4,5 m breið og um 4,0 m há. Þau eru bogalaga úr báruðum galvanhúðuðum stálplötum sem eru boltaðar saman í boga. Að reiðgöngunum var lagður nýr reiðstígur, um 380 m langur. Vegtenging að Waldorfskóla var breytt í þessum áfanga en tengingin var færð niður í Lækjarbotna. Vegurinn að Waldorfskóla er 1,2 km að lengd og klæddur bundnu slitlagi. Ákveðið var að bæta við verkið 950 metra kafla frá Lögbergsbrekku og að Gunnarshólma, gerð hliðfærðra T-vegamóta og hliðarvegum. Framkvæmdir við viðbótarkaflann hófust sumarið 2023. Útbúin verða tvö ný gatnamót á leiðinni til að fækka tenginum inn á þjóðveginn, en við þessa framkvæmd munu fimm tengingar sameinast í eina en það var eitt af meginmarkmiðum framkvæmdarinnar, að fækka tengingum, til að auka umferðaröryggi. Einnig voru gatnamótin að Lækjarbotnum og þar með Waldorfskóla færð vestar. Tengingin frá Hringvegi er 220 metrar. Verklok eru áætluð sumarið 2024. ↑ Um þessar mundir er unnið að breikkun Suðurlandsvegar frá Lögbergsbrekku að Gunnarshólma, eða um 950 m leið. → Unnið að malbikun Suðurlandsvegar í fyrsta áfanga verksins sem lauk sumarið 2023.

x

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar
https://timarit.is/publication/1142

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.