Úrval - 01.09.1968, Blaðsíða 18
16
ÚRVAL
það sérstaka hliðsjón af loftlags-
sögu.
Þess er þá fyrst að geta, að á
þeim öldum mannkynssögunnar,
sem hér koma til greina, voru á
þessum slóðum mikil hirðingja-
lönd. Sjötta öldin er blómaöld
hjarðmennskunnar. Tyrkneskar
sveitir festu yfirráð sín yfir gras-
sléttunni miklu ,og stofnuðu tyrk-
neska Khan-veldið, og stóð sú þró-
un reyndar í sambandi við veður-
farið. Svæðin umhverfis Volgu
fengu þá í minnsta lagi raka með
læðum vestan af Atlantshafi, og
þurrkur var þar mikill. Lítið rann
í Kaspíahafið og það minnkaði.
Nálægt ósum Volgu við Kaspíahaf
mátti ætla að Khazarar hefðu átt
upptök sín og aðal-aðsetur. A sjö-
undu öld er talið að eftirkomandi
tyrkneska Khansins hafi tekið sér
bólfestu á þeim slóðum.
En þegar veðurfar fór að breytast
á nýjan leik, hækkaði í Volgu og
vatnsmagnið jókst, svo að. Kaspía-
hafið fór að ganga á lönd Khazara.
Samtímis sóttu að þeim hirðingjar,
soltnir, þyrstir og grimmir, úr
austri. Hið rísandi Rússaveldi ógn-
aði þeim úr vestri og úr suðri sótti
að hið vaxandi Kaspíahaf, sem jafnt
og þétt og ófrábægj anlega flæddi
inn yfir hina flatlendu sléttu.
Um miðja tíundu öld voru tveir
þriðju hins eiginlega Khazaralands
koímnir undir sjó. Og árið 965
megnaði Svjatosleifur fursti að
steypa Khazaraveldinu að fullu með
voldugu átaki. Hafgangurinn sá
fyrir því sem eftir var, og í lok
þrettándu aldar var allt landið
komið undir vatn og sjó. Þeir sem
eftir lifðu gengu á hönd Múhameðs-
trú og samlöguðust nýjum sigur-
vegurum.
Þannig hugsaði dr. Gumilyov
sér endalok Khazara, út frá loft-
lagssögunni, og nú leitaði hann ár-
um saman að menjum um höfuð-
borg þeirra. Það fór reyndar svo
að Khazararúst fannst á hæð einni
í ósasvæði Volgu (á fjórtándu öld
náði sjórinn um háflæði að rótum
þeirrar hæðar). Þegar plægt var ná-
lægt miðju ósasvæðinu komu líka
upp brot úr leirkerum sem rekja
mátti til Khazara. Og þar með
hefur líka hulan yfir hinu horfna
Khazaraveldi, og höfuðborginni
Itil, tekið að lyftast.
Leyniformúla .....
Einstaka sinnum mætir maður geysilega aðlaðandi fótki, og mað-
ur verður himinlifandi, Þegar maður kemst að þvi, að það kann
geysilega vel við rnann, þangað til maður gerir sér grein fyrir því, að
það kann geysilega vel við næstum alla ........... og það er einmitt
það, sem gerði fólk þetta geysilega aðlaðandi.
Mignon McLaughlin.