Úrval - 01.09.1968, Blaðsíða 63

Úrval - 01.09.1968, Blaðsíða 63
DR. PHIL HELGI JÓNSSON .... 61 valds Thoroddsens. Þegar hann þroskaðist og eltist þróaðist með honum sú hugmynd að helga ís- lenzkum náttúruvísindum starfs- krafta sína, þó mikil óvissa ríkti um það þá hér á landi, hvort slíkt starf nægði til að veita manni nauðsyn- legt lífsviðurværi. Að loknu stú- dentsprófi hélt Helgi því utan til náms og innritaðist í Hafnarhá- skóla. Hann lagði stund á náttúru- fræði með grasafræði sem aðal- grein og tók strax til við námið af kappi. Frá upphafi var tilgangur hans tvíþættur og miðaði hann allt sitt nám við það. í fyrsta lagi að ljúka magisterprófi í grasafræði, en þó einkum og sér í lagi að búa sig undir grasafræðirannsóknir heima á íslandi. Helgi var því miður ekki heilsuhraustur og á stúdentsárunum fékk hann lungnatæringu, sem þá hafði um langt skeið verið eins kon- ar „atvinnusjúkdómur“ stúdenta. Frá því í maí 1893 og fram í ágúst árið eftir dvaldist Helgi því sér til heilsubótar á íslandi og var lengst af í Vallanesi hjá Magnúsi bróður sínum og tókst að yfirbuga tæring- una til fulls. Ekki var Helgi iðju- laus í Vallanesi, heldur hélt þar áfram námi sínu á eigin spýtur, og fékkst einnig við rannsóknir. Vor- ið og sumarið 1894 ferðaðist hann nokkuð um Austurland til rarm- sókna og hlaut til þess styrk frá menntamálaráðuneytinu danska. Rannsakaði hann þá háplöntuflóru og gróður landshlutans, jafnframt því sem hann hugði að ástandi plantnanna yfir vetrarmánuðina og um laufgunar- og blómgunartímann. Þessar rannsóknir Helga þóttu hin- ar merkilegustu og þegar hann kom aftur til Hafnar fór hann jafnframt náminu að skrifa um þær undir handleiðslu hins ágæta kennara síns Eug. Warmings, prófessors, en Warming var einmitt þekktur að því, að hafa sérstakt lag á að vekja áhuga nemenda sinna á sjálfstæðum rannsóknum. Annar aðalkennari Helga var hinn kunni þörungafræð- ingur L. Kolderup Rosenvinge. Þetta urðu þrjár ritgerðir, sem all- ar birtust í riti Danska Grasafræði- félagsins, Botanisk Tidsskrift, sú síðasta 1896. í þessum ritgerðum var í fyrsta sinn gerð tilraun til að lýsa háplöntuflóru og gróðri heils landshluta og verður ekki annað sagt en að tilraunin hafi tekizt vel, miðað við þau gögn sem tiltæk voru; m. a. var hér getið tíu nýrra tegunda fyrir ísland. Haustið 1896 lauk Helgi svo lokaprófi, þ. e. ma- gisterprófi, í grasafræði frá Hafn- arháskóla, og sama ár hlaut hann einnig verðlaun frá Danska Nátt- úrufræðifélaginu fyrir ritgerðirnar þrjár, sem áður voru nefndar, og má þar af marka, hvers rannsókn- ir hans voru metnar. Samt voru eng'ir möguleikar á því fyrir Helga að fá lífvænlega stöðu hér á landi. Þó hann væri eini íslendingurinn með háskóla- próf í grasafræði, þá hafði þjóðin, sem þó lifði á grasrækt, engin not fyrir hann og þekkingu hans. Þetta munu hafa verið Helga nokkur von- brigði, en því miður voru það ekki síðustu vonbrigðin sem hann varð fyrir á lífsleiðinni. Helgi var þó ekki af baki dottinn, en hélt heim til íslands til rannsókna snemma
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132

x

Úrval

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.