Ársrit um starfsendurhæfingu - 2023, Qupperneq 8
VIRK
Stofnun eins og VIRK þarf að þróast áfram
á markvissan hátt í samræmi við stefnu
og framtíðarsýn en á sama tíma er einnig
mikilvægt að stofnunin þróist í takt
við síbreytilegar þarfir samfélagsins á
hverjum tíma. Til að ná þessu þurfum við
sífellt að endurskoða vinnulag okkar, hlusta
á aðra og hafa auðmýkt, hugrekki og vilja
til stöðugra umbóta og þróunar. Aðeins
á þann hátt tryggjum við að VIRK þjóni
þörfum samfélagsins á hverjum tíma og
veiti einstaklingum árangursríka og góða
þjónustu til framtíðar.
Mynd 2
Myndin sýnir hlutfall stöðugilda
útskrifaðra einstaklinga með mismunandi
framfærslustöðu í lok þjónustu á árunum
2020-2022.
Hafa ber í huga að ekki er um að ræða
fjölda einstaklinga heldur stöðugildi því
hver einstaklingur getur verið með fleiri
en eina tegund framfærslu við útskrift.
Ef einstaklingur fer t.d. í hálft starf þegar
þjónustu lýkur þá er það skráð sem hálft
stöðugildi og önnur framfærsla skráð á móti.
Mynd 3
Í stað þess að skoða stöðugildi eins og gert
er á mynd 2 er hér horft til fjölda einstaklinga.
Myndin sýnir hlutfall þeirra sem ljúka
þjónustu hjá VIRK og eru að einhverju leyti í
vinnu, í atvinnuleit eða námi við útskrift.
Hér má sjá að 85% þjónustuþega sem luku
þjónustu á árinu 2022 voru annað hvort
að öllu eða einhverju leyti virkir í vinnu,
atvinnuleit eða námi. Þetta á við um 79%
þjónustuþega sem hafa útskrifast frá VIRK
frá upphafi.
ÁRANGUR VIRK
Mynd 1
Öllum þjónustuþegum sem útskrifast frá
VIRK er boðið að taka þátt í þjónustukönnun
þar sem þeir eru beðnir um að svara
spurningum um þjónustuna og einstaka
þætti hennar.
Myndin hér til vinstri inniheldur upplýsingar
úr þessari könnun þar sem sjá má að
einstaklingar telja að þjónusta VIRK hafi haft
mikil áhrif á stöðu þeirra. Við lok þjónustu er
sjálfsmynd þeirra sterkari, starfsgeta meiri
og líkamleg og andleg heilsa betri.
8,0
7,0
6,0
5,0
4,0
3,0
2,0
1,0
0
Sjálfsmynd, starfsgeta og líkamleg og andleg heilsa
við upphaf og lok þjónustu
á kvarðanum 0-10 þar sem 0 er lægsta og 10 er hæsta einkunn
Í upphafi þjónustu Við lok þjónustu Mynd 1
2,6
1,6
2,8
2,0
6,3
5,8 5,9 6,3
Sjálfsmynd Starfsgeta Líkamleg heilsa Andleg heilsa
20222020 2021
60%
50%
40%
30%
20%
10%
0%
32 2
89
44
46
12
1 12
2022
16
2 2234
6
222
11
13
5
Laun á vinnumarkaði
Atvinnuleysisbætur
Engar te
kjur
Fjárhagsaðstoð
Sjúkrasjóður
Örorkulífeyrir
Annað
Mynd 2
Námslán
Endurhæfingarlífe
yrir
58
100%
90%
80%
70%
60%
50%
40%
30%
20%
10%
0%
2013 2014 2015 2016 2017 2018 2019 2020 2021 2022 Alls
Hlutfall útskrifaðra einstaklinga sem eru annað hvort í vinnu,
í atvinnuleit eða í námi við útskrift - óháð framfærslustöðu
79% 79%
85%
79%77% 75% 79% 76% 78%
74%
82%
Mynd 3
Ár
Framfærslustaða einstaklinga við lok þjónustu hjá VIRK
Sýnt sem hlutfall stöðugilda
Stefna, framtíðarsýn, þróun og
breytingar
Á árinu 2019 var farið í mikla stefnumót-
unarvinnu hjá VIRK þar sem m.a. var mótuð
eftirfarandi framtíðarsýn til ársins 2025:
• Þjónustan er straumlínulöguð og
þrepaskipt út frá vanda einstaklinga
• Skilvirkt og öflugt samstarf er við
fagaðila, vinnustaði, stéttarfélög,
lífeyrissjóði og stofnanir um allt land
• Almenn vitneskja er um ávinning
af starfi VIRK og rétt einstaklinga til
þjónustu hjá VIRK
• Atvinnutenging VIRK stuðlar að
auknum tækifærum á vinnumarkaði
fyrir einstaklinga með heilsubrest
• Forvarnaverkefni VIRK stuðlar að
heilsusamlegu starfsumhverfi og
eykur þannig þátttöku einstaklinga á
vinnumarkaði
• VIRK er fyrirmyndar vinnustaður
þar sem lögð er áhersla á vellíðan og
árangur starfsmanna.
Frá árinu 2019 hefur verið unnið markvisst
að því að raungera þessa framtíðarsýn
og gaman er að segja frá því að verulegur
árangur hefur náðst í nær öllum þeim
þáttum sem skilgreindir eru hér að
framan. Á árinu 2023 hafa verið skilgreind
forgangsverkefni út frá ofangreindri stefnu-
mótun og fyrirhugað er næsta vetur að fara
aftur af stað í stefnumótunarvinnu þar sem
framtíðarsýn til næstu 5 ára verður mótuð.
Á þann hátt er tryggt að starfsemi VIRK sé
markviss og í samræmi við þá stefnu og
framtíðarsýn sem stjórn og hagaðilar móta
á hverjum tíma.
14 15virk.is virk.is