Ársrit um starfsendurhæfingu - 2023, Síða 45
VIRK
Til að gæta samræmis voru svarendur á
eftirlaunum eða í fæðingarorlofi fjarlægðir
úr úrvinnslunni hér á eftir og má þá sjá
að hlutfall starfandi verður 65% á móti
24% í veikindum eða á örorku og 11% í
atvinnuleit eða í námi (ekki sýnt á mynd).
Munur milli kynja er óverulegur þegar litið
er til launþega (67% karla á móti 65%
kvenna) en eykst í hópi þeirra sem eru í
veikindum (sjá mynd 5). Hér er þó vert
að taka fram að fleiri konur en karlar voru
á eftirlaunum þegar könnunin var lögð
fyrir og voru jafnframt allir svarendur í
fæðingarorlofi kvenkyns.
Þetta er þó ekki öll sagan. Ýmsar vís-
bendingar eru um það að endurkoma til
vinnu sé jafnvel tíðari en þessi 65% segja
til um. Í ljósi þess hve langur tími hefur
liðið á milli greiðslu sjúkradagpeninga
(2018/2019) og fyrirlagningu könnun-
arinnar (2022) voru þátttakendur spurðir
að því hvort þeir hefðu hætt í starfi eða
misst starf á tímabilinu. Í ljós kom að
tæp 39% svöruðu spurningunni játandi
en 61% neitandi (ekki sýnt á mynd).
Athyglisverðast er þó að sjá niðurstöðurnar
(á mynd 6) greindar eftir núverandi stöðu á
vinnumarkaði. Þá kemur fram að um 53%
þeirra sem voru í atvinnuleit eða í námi
þegar könnunin var lögð fyrir höfðu verið
í starfi í millitíðinni sem þeir annað hvort
hættu í eða misstu.
Svipað má segja um þá sem eru í veik-
indum eða á örorku þegar könnuninni er
svarað en 23% þeirra höfðu snúið aftur til
starfa eftir veikindaleyfið (2018/2019) en
hætt í starfi eða misst það í millitíðinni.
Þessar upplýsingar eru mikilvægar fyrir
starfsendurhæfingu og gefa tilefni til þess
að skoða betur – og greina – ólíkar leiðir
fólks á vinnumarkaði. Það er vel hugsanlegt
að veikur einstaklingur fari oft inn á og út af
vinnumarkaði eftir aðstæðum hverju sinni.
Því er líklegt að rannsóknir sem taka mið af
stöðu einstaklinga á einum tímapunkti eftir
veikindaleyfi (svokallaðri punktstöðu) missi
hugsanlega af mikilvægum upplýsingum
um þróunina frá atvinnu til veikinda og
öfugt.
Athyglisvert er að sjá aldursskiptingu
einstaklinga eftir vinnumarkaðsstöðu. Á
mynd 7 kemur fram að aldur hefur ekki
bein eða línuleg áhrif á vinnumarkaðsstöðu.
Í raun fer ekki að draga markvisst úr
Hefur þú verið í vinnu sem þú hefur misst eða hætt í
eftir að veikindaleyfinu lauk?
Svörum skipt eftir stöðu á vinnumarkaði þegar könnunin var lögð fyrir
Staða á vinnumarkaði skipt eftir aldri
Staða á vinnumarkaði eftir menntunarstigi
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Já, ég missti eða hætti í starfi Nei, ég hvorki missti né hætti í starfi
Í launuðu starfi Í veikindum / á örorku í atvinnuleit eða í námi (án vinnu)
í atvinnuleit eða í námi (án vinnu) Í veikindum / á örorku Í launuðu starfi
80%
60%
40%
20%
0%
80%
60%
40%
20%
0%
40%
53%
23%
60%
47%
77% Fjöldi svara:
1.474
Fjöldi svara:
1.592
71%
64% 68%
60%
52%
15%
22%22%
35%
41%
12% 14% 11%
5% 7%
11%
12%
11%
10%
12%
10%
16%
24%
24%
38%
79%
72%
65%
66%
50%
Hafa lokið meistara- eða doktorsnámi
Hafa lokið grunnháskólagráðu (B.A/B.S)
Diplómanám á háskólastigi
Iðn- eða framhaldsskólapróf
Grunnskólapróf
Fjöldi svara:
1.388
eru með grunnskólapróf að baki og allt til
79% svarenda sem hafa lokið meistara-
eða doktorsgráðu.
Atvinnuþátttaka virðist ráðast nokkuð
af því hvort einstaklingar haki við einn
sjúkdómaflokk eða fleiri. Á mynd 9 má sjá
að 40% einstaklinga - sem haka við tvo
sjúkdómaflokka eða fleiri – eru í launuðu
starfi eftir veikindaleyfi borið saman við
um 67-73% þeirra sem haka einungis við
einn sjúkdómaflokk. Hér er þó mikilvægt
að hafa í huga aðra undirliggjandi þætti
Mynd 11
sem gjarnan eru taldir hafa áhrif á tíðni
sjúkdóma, þá ekki síst aldur. Heilt á litið
eru eldri einstaklingar líklegri en þeir sem
yngri eru til að vera heilsulitlir og jafnvel
fjölveikir. Á þessu stigi úrvinnslunnar er því
óvist hvort fjölveikindi séu ráðandi þáttur í
atvinnustöðu fólks í öllum aldurshópum
eða sumum.
Þátttakendur voru spurðir að því hvort
þeir hefðu nýtt sér þjónustu VIRK – Starfs-
endurhæfingarsjóðs í veikindaleyfinu. Í
ljós kom að um 42% (708) höfðu lokið
starfsendurhæfingu hjá VIRK þegar
könnunin var lögð fyrir (ekki sýnt á mynd).
Líkt og VIRK hefur fjallað um áður – m.a.
í ársritum og öðru kynningarefni - bendir
margt til þess að þjónustuþegar VIRK glími
við erfið og flókin veikindi, jafnvel erfiðari en
almennt gerist á íslenskum vinnumarkaði8.
Niðurstöður rannsóknarinnar renna frekari
stoðum undir þetta. Á mynd 10 er að sjá
hlutfall svarenda sem voru í þjónustu
VIRK í veikindaleyfinu eða ekki, skipt eftir
sjúkdómaflokki. Í ljós kemur að 71% þeirra
sem voru í þjónustu VIRK hökuðu við
tvo sjúkdómaflokka eða fleiri – og eru þá
hugsanlega fjölveikir - borið saman við 29%
sem voru ekki í starfsendurhæfingu.
Sama starf að afloknu
veikindaleyfi?
Þátttakendur á vinnumarkaði voru spurðir
að því hvort þeir væru í sama starfi og
þeir voru í fyrir veikindaleyfi. Nær 7 af
hverju 10 (68%) svöruðu spurningunni
neitandi á móti 32% sem svaraði henni
játandi. Ekki var spurt um ástæður þessa
Hlutfall af starfandi, skipt eftir því hvort þeir eru á
sama vinnustað eða ekki að afloknu veikindaleyfi
Já
Nei
32%
68%
atvinnuþátttöku meðal svarenda fyrr en
um og eftir miðjan aldur. Á bilinu 64-71%
svarenda 49 ára og yngri eru í launuðu
starfi þegar könnun er svarað borið saman
við um nokkuð færri (60%) í hópi 50-59 ára
og og 52% í hópi þeirra sem eru 60 ára og
eldri.
Nokkuð skýr tengsl virðast vera á milli
stöðu svarenda á vinnumarkaði eftir
menntunarstigi. Á mynd 8 má sjá að
vinnuþátttaka eykst jafnt og þétt með
aukinni menntun, frá um 50% þeirra sem
20-29 ára 30-39 ára 40-49 ára 50-59 ára 60 ára og eldri
Í launuðu starfi Í atvinnuleit eða námi Í veikindum / örorku
29%
33%
67%
64%
36%
21%
79%
71%
0% 10% 20% 30% 40% 50% 60% 70% 80%
Staða á vinnumarkaði að afloknu veikindaleyfi
skipt eftir sjúkdómaflokki
Hlutfall svarenda sem lauk starfsendurhæfingu hjá VIRK í veikindaleyfinu
skipt eftir sjúkdómaflokki
Mynd 9
Mynd 10
0% 20% 40% 60% 80% 100%
Í launuðu starfi Í veikindum / á örorkuí atvinnuleit eða í námi (án vinnu)
Voru ekki í starfsendurhæfingu hjá VIRK Voru í starfsendurhæfingu hjá VIRK
Fjölveikindi (haka við a.m.k. 2 sjúkdómaflokka)
Haka við aðra sjúkdóma eingöngu - og ekkert annað
Haka við andlegan vanda/geðraskanir - og ekkert annað
Haka við stoðkerfisvanda - og ekkert annað
0% 20% 40% 60% 80%
Haka við aðra sjúkdóma eingöngu
Haka við andlegan vanda / geðraskanir eingöngu
Haka við stoðkerfisvanda eingöngu
Fjölveikindi (haka við a.m.k. 2 sjúkdómaflokka)
40%
70%
67%
73%
46%
17%
25%
24%3%
14%
13%
8%
88 89virk.is virk.is