Úrval - 01.04.1973, Blaðsíða 34
32
ÚRVAL
láta aöra I ljós, hún veröur meövituö,
en hin kenndin er rekin út i yztu
myrkur sálarlifsins. En samt búa
báöar þessar kenndir i barninu og
togast á. Þegar barn sýnir óraunhæfa
hræöslu um aö eitthvaö komi fyrir
systkini þess, er það kannske einmitt
þiessi dulda ósk um aö eitthvaö illt
hendi þaö, sem vekur barninu
hræöslu og knýr meövitundina til að
gera alla varúöarráöstafanir til að
hindra slíkt. Ef eitthvað hendir yngra
systkini eru allar iikur á þvi, að
afbrýöisamt barn kenni sjálfu sér um.
Þaö er þessi sifellda sektarkennd, sem
veldur þvi, aö barniö kann aö vera
stööugt hrætt um að eitthvað hendi
foreldra þess, þaö missi þau I
refsingarskyni fyrir sinar ljótu
hugsanir. Hið sama veldur slæmum
draumum og martröö, þar sem barniö
er i sifelldri hættu fyrir illum öflum.
Það hræðist refsingu fyrir þær
kenndir, sem knýja á i undir-
meövitundinni en barniö þó gerir sér
enga grein fyrir.
Til þess aö hræöslan hverfi, þarf
barnið aö geta tjáö þessar kenndir
óhindraö og gera þær aö nokkru
meðvitaðar. Flest börn geta tjáð
þessar kenndir i leik, einkum ýmis
konar imyndunarleikjum, og fá
hæfilega lausn á þann hátt. Lækning á
þessari tegund af hræöslu felst f þvi aö
hjálpa barninu til aö tjá þessar
kenndir á þann hátt, sem þvf er
eiginlegt og eölilegt, Iáta þau finna, að
maöur skilji, hvað þau eru að segja I
leik sinum og taka þvi sem fyllilega
leyfilegum og eðlilegum hlut.
Ég hef hér á undan drepiö á nokkur
algeng einkenni um afbrýöisemi
barna. Mörg fleiri einkenni mætti
nefná, sem hér gefst ekki timi til. Oft
er um fleiri en eitt einkenni aö ræöa
hjá sama barninu, sem geta valdiö þvi
margskonar vanliðan. En þaö er
mikilsvert, aö foreldrar geri sér grein
fyrir þvf, aö hæfileg afbrýöisemi er
algengt og fyllilega eölilegt fyrirbrigöi
hjá börnum, reyndar gagnlegt I mótun
persónuleikans. Sálrænir árekstrar I
bernsku og lausn þeirra leggur
grundvöllinn aö hæfileika barnsins til
aö leysa vandamál sín siðar á ævinni,
einkum aö þvi er varðar tilfinningaleg
tengsl þess og samskipti viö annaö
fólk. Ef foreldrarnir lita á afbrýöisemi
frá þessu sjónarmiði, þekkja einkenni
hennar og hafa nokkra innsýn i
orsakasamhengiö, eru meiri likur
fyrir þvt, atr þeir geti hjálpað barni
sinu yfir erfiðasta hjallann og gert
afbrýðisemina að gagnlegri lifs-
reynslu fyrir barniö.
Spn-ngingar mynda
eggjahvituefni
Vitali Goldanski félaga i sovézku visindaakademfunni hefur með til-
raunum tekizt að sanna, að sprengingar geta valdið þvi, að ólifrænar
sameindir myndi eggjahvituefni. Við tilraunirnar notaði hann ýmsar
amfnosýrur. Uppgötvunin hefur sérstaka þýðingu i sambandi við kenn-
ingarnar um myndun lifs á jörðinni. Goldanski bendir i þessu sambandi á
breytingar, sem kynnu að hafa orsakazt af loftsteinasprengingum.