Úrval - 01.04.1973, Síða 52
50
ÚRVAL
MEGRUNARMATARÆÐI
SEM HÆFIRÞÉR
Skynsamleg ráð þekkts næringarfræðings, um hvernig þú
getur sniðið megrunarmataræði og leiðina til bættrar
heilsu, við þitt eigið hæfi.
Eftir Fredrick J. Stare og Mary McSherry
Allar reglur um megrunar-
mataræöi eiga að vera fljót-
legasta og þjáningarminnsta
leiðin til að grenna sig og hver um sig
gefa þær mismunandi ráðleggingar.
Það erengin furða þó þú hafir komizt
að þeirri niðurstöðu, að engin þeirra sé
við þitt hæfi. En svo er ekki og það sem
ánægjulegast er: Ein er sú, sem hæfir
þínum lifsháttum og hún ber árangur!
Hiö mikilvægasta I hverju
megrunarmataræði er ,,þú” og þér
verður að vera auðið aö lifa eölilegu
lifi með þvi. Þú verður að geta staðið
við það án óþæginda, til að létta þig og
halda holdafarinu i skefjum. Með
þessu er átt viö að mataræðið verður
að hafa fullt næringargildi i mat, sem
þér þykir góður, og aö þú getir etið
hann eftir þeirri timaáætlun, sem þér
hæfir.
Hljómi þetta likt og einstaklings-
þundiö „klæðskerasaumað” mat-
aræði, er það rétt. Og ef þú heldur
að þetta megrunarmataræði sé vand-
fundið eða dýrt, er það rangt. Þú
byrjar megrunina eins og klæðskeri
fatasaum — með þvi að taka mál. Með
þvi aö gera úttekt á sjálfum þér og
skrifa niður svörin við þrem
spurningum: „Hvaða manntegund er
ég? Hvaða matur finnst mér beztur?
Hverjar eru lifsvenjur minar?”
Undir liðnum: Hvaða manntegund
er ég?” skaltu hripa niður þau
persónueinkenni, sem munu hafa áhrif
á megrunarmataræðið. Ertu vilja-
sterkur einstaklingur og sjálfsagaður?
Eöa ertu — eins og við erum flest —
góður viö sjálfan þig og auðvelt að
draga úr þér kjarkinn? Vertu
hreinskilinn. Það er til einskis að gefa
á sér einhverja fyrirmyndarlýsingu og
valda sjálfum sér svo vonbrigðum,
með þeim gamalgróna ósið að stelast I
kökubita.
Ef þér virðist liklegt aö þú látir
undan kökubitaósiðnum, gerðu þér þá
grein fyrir hvenær þér er hættast við
þeirri freistingu. Heldurðu megrunar-
mataræði i einrúmi? Eða ef til vill i
þinu tilfelli, aðeins þegar þú ert innan
um annað fólk? Hefurðu eitthvaö til að